Pæling dagsins: Geta stjórnvöld staðið keik pólitískt?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Læknar standa í harðri kjara­bar­áttu. Það er ekki gott að segja hvort það miðar eitt­hvað áfram í kjara­við­ræðum við stjórn­völd, en oft er það svo að um leið og ein­hver lausnaf­ar­vegur er mynd­aður, þá kemur lausnin nokkuð fljótt. Það verður að segj­ast að stjórn­völd eru ekki í sér­stakri samn­ings­að­stöðu. Á sama tíma og læknar eru í verk­falli, með til­heyr­andi alvar­legri þjón­ustu­skerð­ingu við veikt fólk á öllum aldri, þá standa stjórn­völd að því að gefa tugi millj­arða úr rík­is­sjóði til fólks sem er með verð­tryggð hús­næð­is­lán í eigin nafni og á eigin ábyrgð. Skila­boðin til lækna eru þá vænt­an­lega þessi; sjáið, það er nóg til í rík­is­sjóði, við erum að gefa fólki úr honum, jafn­vel fólki sem þarf ekki á því að halda að fá pen­inga! Það verður áhuga­vert að sjá hvernig stjórn­völd munu leysa úr þess­ari stöðu, þannig að þau standi keik og ósködduð eftir póli­tískt.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár