Að óbreyttu missa flestir starfsmenn Arctic Odda á Flateyri vinnuna

"Staðan er þannig að við erum enn að leita að sam­starfs­að­ilum eða kaup­endum að bol­fisk­vinnsl­unni okkar á Flateyri, með það að mark­miði að starf­semin geti haldið þar áfram." Þetta segir Sigurður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri Arctic Odda í sam­tali við Kjarnann. "Umleit­anir okkar eru á við­kvæmu stigi, en ég er búinn að ræða við aðila, sem hafa ýmist í hyggju um að ganga til liðs við okkur eða kaupa, og þreif­ingar eru í gangi."

Eins og kunn­ugt er hyggst sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Arctic Oddi á Flateyri hætta þar bol­fisk­vinnslu, eftir að Byggða­stofnun dró úthlutun 300 tonna byggða­kvóta til fyr­ir­tæk­is­ins til baka. Byggða­stofnun segir úthlutun kvót­ans háða fram­tíð­ar­sýn fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi bol­fisk­vinnslu á Flateyri, en Arctic Oddi hyggst nú ein­beita sér að kjarna­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, það er vinnsla á eld­is­fiski. "Eftir að við misstum byggða­kvót­ann þá var stoð­uðum kippt undan bol­fisk­vinnsl­unni, en við höfum skiln­ing á afstöðu Byggða­stofn­unnar. Við höfum staðið við okkar sam­komu­lag til þessa, og unnið allan fisk á Flateyri sam­hliða eld­is­fisknum. Við ætl­uðum að gera það áfram en nú sjáum við ekki lengur for­sendur til þess. Við erum ekki sér­fræð­ingar í bol­fisk­vinnslu, okkar sér­svið eru eld­is­af­urðir, og við erum alls ekki að hætta fisk­eld­inu," segir Sigurður.

Að óbreyttu missa nær allir starfsmenn vinnuna


Fimmtán manns létu af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu í síð­asta mán­uði, en tíu þeirra var sagt upp störfum. Átján manns eru enn að störfum hjá fyr­ir­tæk­inu, sem hefur hrá­efni, það er eld­is­fisk, til að halda uppi vinnslu fram að ára­mótum og mögu­lega ein­hverjum vikum lengur. Þá starfa jafn­framt fimm manns hjá útgerð fyr­ir­tæk­is­ins, sem til stendur að selja líka með tíð og tíma sam­hliða fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Ef Arctic Oddi nær ekki að landa samn­ingum við sam­starfs­að­ila á næstu mán­uðum, verður þorra starfs­fólks­ins sagt upp. "Því miður verður það þannig, en við munum halda okkar starfs­fólki upp­lýstu um stöð­una. Við erum að fara úr bol­fisk­vinnsl­unni og ef ekki finnst lausn varð­andi fram­tíð hennar, þá verður fleirum sagt upp því miður. Þá munum við bara halda eftir lág­marks fjölda starfs­manna sem við þurfum til að sinna fisk­eld­inu fram að næstu slátrun sem verður ekki fyrr en næsta haust."

"Við erum langt frá því að leggja árar í bát."


Dýr­fiskur, syst­ur­fé­lag Arctic Odda, hefur eld­is­leyfi fyrir slátrun og vinnslu 3.000 tonna af eld­is­fiski. Upp­bygg­ing fisk­eld­is­ins hefur tekið lengri tíma en vonir fyr­ir­tæk­is­ins stóðu til, en að sögn Sigurðar mun fisk­eldið tryggja hátt í fjöru­tíu árs­störf þegar það verður komið að fullu á kopp­inn innan þriggja ára. Þangað til sá áfangi næst mun fyr­ir­tækið ráða starfs­fólk inn til að sinna slátrun og vinnslu árs­tíða­bundið. "Við erum langt í frá að leggja árar í bát varð­andi fisk­eldið, við ætlum að halda áfram að byggja það upp."

Í frétt Kjarnans í gær gagn­rýndu Gísli Halldór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­kaup­staðar, og Finnbogi Svein­björns­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, fyr­ir­tækið fyrir að hafa ekki til­kynnt hóp­upp­sagnir sem það réðst í í síð­asta mán­uði. "Það er rétt, við höfðum ekki sam­band við þá þegar við sögðum fólk­inu upp, en bæði stétt­ar­fé­lag­inu og bæj­ar­yf­ir­völdum mátti vera ljóst hvað stæði til miðað við þau sam­skipti sem við höfum átt í und­an­farnar vikur og mán­uði."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár