Keldan eflir þjónustu sína með nýrri tækni

Vefurinn Keldan, sem fyr­ir­tækið Kóði á og rekur, býður nú upp á nýja þjón­ustu sem nefn­ist lyk­il­tölur fyr­ir­tækja. Þjón­ustan veitir aðgang að helstu tölum og rekstr­ar­upp­lýs­ingum stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, til dæmis veltu, hagnað, eignir, hlutafé, starfs­manna­fjölda o.fl. „Það liggur fyrir að það er áhugi innan við­skipta­lífs­ins að hafa heild­ar­yf­ir­lit yfir stærstu fyr­ir­tæki lands­ins enda hafa slíkar upp­lýs­ingar marg­vís­legt nota­gildi. Með þess­ari þjón­ustu Keld­unnar verða upp­lýs­ing­arnar mun aðgengi­legri en áður og er það í takt við þá þróun að hafa hlut­ina lif­andi net­inu,“ segir Örvar Þór Ólafsson, mark­aðs­stjóri Kóða.

Upp­lýs­ing­arnar um stærstu fyr­ir­tækin eru aðgengi­legar öllum og birt­ast á Keldan.is undir liðnum lyk­il­tölur. Hægt verður að raða list­anum á mis­mun­andi hátt og flokka hann eftir atvinnu­greinum svo eitt­hvað sé nefnt. Í dag eru yfir 200 stærstu fyr­ir­tæki Íslands á list­anum og verður fleiri bætt við á næstu vikum.

Lyk­il­tölur fyr­ir­tækja eru sóttar úr árs­reikn­ingum sem við­skipta­vinir Keld­unnar hafa keypt í gegnum Kelduna, en Keldan hefur miðlað árs­reikn­ingum frá RSK um ára­bil. Það var hópur nem­enda við Háskól­ann í Reykja­vík sem vann loka­verk­efni fyrir Kelduna og þró­aði for­rit til að vinna gögn sjálf­virkt úr skönn­uðum árs­reikn­ingum. Til þess var m.a. not­ast við svo­kall­aðan vél­rænan lær­dóm (machine learn­ing techniques). Hluti af gögn­unum sem kerfið vinnur er nú orð­inn aðgengi­legur á www.keldan.is.

Ávinn­ing­ur­inn af því að hafa upp­lýs­ingar um lyk­il­tölur fyr­ir­tækja á net­inu er marg­vís­legur að sögn Örvars, en not­and­inn getur nálg­ast upp­lýs­ing­arnar hvar og hvenær sem er, flokkað fyr­ir­tækin eftir mis­mun­andi lyk­il­tölum, borið saman rekstr­ar­nið­ur­stöður frá ári til árs með mynd­rænni fram­setn­ingu, svo eitt­hvað sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár