Rústabjörgun reiða fólksins

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Í fyrstu grein sinni tekur hann fyrir bók Mar­grétar Tryggva­dóttur, Úti­stöður.

 

Útistöður


Höfundur: Margrét Tryggva­dóttir

Hansen & synir

Ein verð­laun getur Margrét Tryggva­dóttir inn­heimt strax fyrir bók­ina sína. „Úti­stöður“ er besti bók­ar­tit­ill flóðs­ins og árs­ins. Frá­bær­lega lýsandi og marg­slung­inn. Vel gert.

Vel gert líka að hafa ákveðið að skrifa þessa bók, að segja sögu eins mik­il­væg­asta breyt­ing­araflsins sem upp­lausnin eftir hrun gat af sér. Því mik­il­vægi Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar/hreyf­ing­ar­innar er áþreif­an­legt þó seint verði þetta kölluð sig­ur­ganga nema rétt í blá­byrjun þegar kosn­ing­arnar 2009 skil­uðu henni fjórum þing­mönnum.

Með fullri virð­ingu fyrir hinum aðskilj­an­leg­ustu mont­bókum og varn­ar­ritum gam­alla póli­tíkusa og ann­arra „ger­enda“ frá velti­árum og hruni þá er þetta bókin með tíð­ind­unum og úrvinnslu­efn­inu fyrir sagn­fræð­ing­ana.

Margrét skrifar lipran og læsi­legan texta. Sem er eins gott því þetta er geysi­löng bók (530 síður). Of löng finnst mér. Næsta yfir­ferð hefði örugg­lega skerpt bók­ina, stytt og bætt tals­vert. Það sýn­ist örugg­lega sitt hverjum um hvað hefði mátt missa sín og hvað ætti að jafn­vel að fá dýpri með­ferð.

Fyrir utan að rekja sína upp­lif­unar- og reynslu­sögu af hinu storma­sama þingi 2009–2013 og kosn­inga­bar­átt­unnni þá fer Margrét yfir öll stór­mál þings­ins, gang þeirra, ógöng­urnar sem flest þeirra röt­uðu í og aðkomu þeirra fjór­menn­inga að þeim. Það er rauna­leg lesn­ing, en of margt af því bætir litlu við það sem enn situr í höfði les­and­ans af frétta­flutn­ingi og „umræð­unni“. Með því að þrengja valið og dýpka umræð­una hefði að mínu mati feng­ist betri bók. Kaflinn um stjórn­ar­skrár­málið er kannski merkastur þeirra. Og þá síður rauna­leg­astur.

Fyrir utan rauna­sög­una um Lands­dóms­klúðrið reyndar. Merkileg og trú­verðug þykir mér sú sýn höf­undar að bræðin yfir nið­ur­stöð­unni í því hafi verið elds­neytið í for­dæma­lausa hegðun hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. Reyndar er Margrét álíka stolt af þætti Hreyf­ing­ar­fólks í Icesave-mál­þóf­inu og hneyksluð á síð­ara þófi. Enda hefur hún svo skýra sýn á það mál að hún hirðir ekki einu sinni um að útlista eða rök­styðja skoðun sína á því.

Það sama má segja um skulda­mál heim­il­anna og verð­trygg­ing­una, sem vita­skuld fá tals­vert rými í bók­inni, en sýn höf­undar á þau er samt aldrei sett fram á sann­fær­andi átt – aftur fær les­and­inn á til­finn­ing­una að Margréti finn­ist skoð­anir sínar svo aug­ljósar og réttar að það taki því ekki að lýsa þeim.

Annað sem ég hefði viljað fá meira um er inn­tak inn­an­flokksá­taka Borg­ara­hreyf­ing­ar­innar. Miklu plássi og end­ur­teknu er varið í að tala um hversu fáfengi­legar og hat­rammar þær urðu, og orsak­irnar greindar vel og skyn­sam­lega. En skýr­ari útlistun á hug­mynda­grunn­inum og um hvað var deilt hefði verið gott að fá, þó ljóst virð­ist vera að aðal­or­sökin fólst í per­sónum, skorti á hefðum, ferlum og formum og hrað­anum sem allt ger­ist á þessi eft­ir­hrunsár. Og óþol­in­mæði ef hrað­inn er ekki nægur.

Já og einu hefði þurft að bæta við. Nafna- og atrið­is­orða­skrá er alger nauð­syn í bók af þessu tagi og þessum „þyngd­ar­flokki“, og ekki skrifa t.d. „mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra“ í ramma­greinum án þess að til­greina um hvern er verið að tala (bls. 421) nema bók­inni sé ekki ætlað lang­lífi.

Úti­stöður er læsi­legt og efn­is­mikið yfir­lit yfir merki­lega tíma, skrifað frá sjón­ar­hóli sem mjög mik­il­vægt er að hafa útsýni frá. Hefði grætt á grimmari rit­stjórn við að velja, hafna og dýpka.

Texti Úti­staðna er brot­inn upp af ramma­greinum af ýmsu tagi. Þar á meðal eru stuttar sögur og myndir af sam­verka­mönnum og öðrum sem verða á vegi Mar­grétar. Verður ekki ein skop­saga úr þing­inu að fljóta með hér:

„Ég stend í hlið­ar­her­bergi við þingsal­inn og er að leita að skrif­færum þegar Jón Bjarna­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra Vinstri grænna, kemur aðvíf­andi. „Mikið er þetta fal­legt háls­men!“ segir Jón og bendir á stórt háls­men sem ég hafði keypt á úti­mark­aði á afmæl­is­dag­inn minn. „Takk,“ segi ég, „ég keypti það í Brussel.“ Skelf­ing­ar­svipur fær­ist yfir and­litið á Jóni sem segir: „Æ,æ,“ snýst á hæli og gengur á brott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár