LHG segir hríðskotabyssur víst hafa verið tollskoðaðar

Í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi var greint frá því að Land­helg­is­gæslan hefði komið sér í ónauð­syn­leg vand­ræði gagn­vart Toll­gæsl­unni, með leyni­legum inn­flutn­ingi á hríð­skota­byssum frá Noregi. Í frétt­inni var sagt að svo virt­ist sem Toll­gæslan hafi algjör­lega verið snið­gengin við inn­flutn­ing­inn á byss­unum, sem hafi orðið til þess að byss­urnar voru inn­sigl­aðar af Tollinum í síð­ustu viku.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni er öllu tali um að leynd hafi hvílt yfir inn­flutn­ingi vopn­anna gagn­vart toll­gæslu­yf­ir­völdum vísað á bug. Þvert á móti hafi toll­verðir fram­kvæmt toll­skoðun á vopn­unum við komu þeirra til lands­ins.

Þá segir í frétta­til­kynn­ing­unni að vopnin hafi enn ekki verið tolla­af­greidd inn í landið, og fullt sam­ráð verði haft við Toll­stjóra um þá afgreiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár