Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Lyon

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Lyon


Þetta var svo ofboðs­lega skemmti­legur dagur. Frakkar eru meist­ara­meist­arar! Ég var hins vegar hel­víti fram­lágur þegar ég vakn­aði. Ég var fullur í gær. Það var auð­vitað alveg bæri­legt og gaman, en það hjálp­aði mér ekk­ert í dag. Alls ekk­ert.

[caption id="attachment_11167" align="alignleft" width="300"] Jón Geir trommari og Björgvin Sig­urðs­son, Böbbi, söngv­ari ræð­ast hér við. Böbbi var lið­tækur knatt­spyrnu­maður á sínum tíma og lék í flestum stöðum með Völsungi frá Húsavík.[/caption]

Við spil­uðum hér í fyrra og hér er gott að vera. Plássið er reyndar ekki mikið og mat­ur­inn var alls ekk­ert góður. Súrkál og unnar kjöt­vörur fyrir suma, alls­kostar til­gangs­laus kjúklingur fyrir fyrir aðra. Drasl. En fólkið hér er óskap­lega næs, allir hjálp­ar­kokkar, tækni­menn og staffið almennt. Sem fyrr var geim­skip­strommu­pall­ur­inn hans Merlin alveg óþol­andi. Trommu­settið okkar var haft aðeins hægra megin við miðju og girti Baldur af úti í horni. Slatti af sett­inu hans Jóns var síðan stað­sett í eins­konar inn­skoti á svið­inu og hann seg­ist hafa þurft að tromma fyrir horn. Gunni var fyrir aftan okkur Þrába. Ekki alveg upp­still­ing sem við erum vanir eða hentar vel en þetta verður víst á alla kanta á þessum túr. Mér sýn­ist þessi nýtil­komni sendi­bíll vera not­aður til þess að ferja meðal ann­ars trommu­pall­inn hans Merlin. Spurning um að setja sykur í bens­íntank­inn. Eða röra­sprengju.

Þegar við vorum hér í fyrra reyndum við að rölta til að finna ein­hverja menn­ingu. Það reynd­ist ómögu­legt. Þess vegna gerðum við ekki mikið í dag. Við bara biðum eftir sánd­tékk­inu sem við afgreiddum á örskömmum tíma. Flexi er að tvíka þetta allt smám saman og fljót­lega verða þessi sánd­tékk forms­at­riði. Ég hélt svo bara áfram að vera soldið þunnur þrátt fyrir alls­konar aðgerðir til að hætta því. Rétt fyrir gigg rað­aði ég í mig alveg dágóðum slatta af verkja­lyfjum. Þau kikk­uðu inn í öðru lagi.

Tón­leik­arnir voru alger­lega sturl­aðir. Fólk um allt enda kjaft­upp­selt og fólk í skapi til að skemmta sér. Hörkupyttur, krádsörf og singa­long. Mjög margir virt­ust hafa komið til að sjá okkur, gamlir Skálmaldar-bolir hér og þar og senni­lega er þetta það gigg okkar utan land­stein­anna þar sem við höfum spilað fyrir flesta banda­menn. Svei mér þá, kannski er þetta hark allt saman að skila ein­hverju. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu betur. Þetta var bara alger­lega frá­bært.

Við lentum reyndar í pínu græju­ves­eni. Fyrir þennan túr tókum við þá stóru ákvörðun að not­ast ekki við gít­armagn­ara. Það var upp­haf­lega ákveðið vegna þess að við hefðum þyrft að róta öllu saman sjálfir, tvisvar á dag, og því hrein­lega nenntum við ekki. Þannig fórum við þá umdeildu leið að fjár­festa í staf­rænum gít­ar­hljóð­gervlum sem eru fisléttir og leggj­ast á gólfið líkt og hvert annað effekta­bretti. Böbbi og Þrábi eru nú þegar orðnir hörkukátir með þetta, og Flexi líka. Baldur er enn efins. Hann vill frekar nota bara gömlu Marshall-stæð­una mína eins og hann er vanur. Ég skil hann vel. Við ætlum þó að reyna að tvíka þetta eitt­hvað til á næstu giggum svo þetta virki nú sem best fyrir alla. Stóri bón­us­inn er hins­vegar sá að með svona lítið sviðs­pláss (les­endur hafa kannski gleymt trommu­pall­inum hans Merlin, það er hann sem tekur svona mikið pláss) er þetta ótrú­legur munur. Ég er hrein­lega ekk­ert viss um að við hefðum til dæmis kom­ist fyrir á svið­inu í dag. En já, græju­vesen. Í þrengsl­unum steig ég hælnum ofan á dótið hans Böbba þegar tvö og hálft lag var eftir að prógram­inu. Við það þagn­aði gít­ar­inn hans og við komum honum ekk­ert í gang það sem eftir lifði giggs. En hann spil­aði nú bara samt. Passa lúkkið, aldrei gleyma því. Við þurfum að trobbúl­sjúta þetta á morgun, það er alveg klárt.

Við höfum spilað sama prógram alla dag­ana hingað til og vænt­an­lega verður ekki mikil breyt­ing á því. Intró, Árás, Gleipnir, Að hausti, Mið­garðsormur, Með fuglum, Narfi og Kvaðning. Drullu­solid, en ég velti því aðeins fyrir mér hvort það vanti örlítið meira af keyrsluköflum. Kannski er það bara spila­greddan.

[caption id="attachment_11168" align="align­right" width="300"] Stund milli stríða.[/caption]

Eftir gigg fór ég í fyrstu sturt­una á túrnum. Það var rosa­legt. Ég var ekki búinn að fara úr brók og bol frá því á Íslandi. Sturtan var svona líka ljóm­andi, heitt vatn og bara þónokkuð af því. Hrein föt, svita­lykt­areyðir, tann- og skegg­burstun. Ég fékk nýja sýn á lífið eftir þetta. Svo biðum við ekki boð­anna því um leið og Arkona klár­uðu að spila þrum­uðum við öllu draslinu í bíl­inn og héldum af stað. Við eigum frí á morgun og því ætlum við að eyða í Barcelona. Þangað er kannski 10 tíma akstur og Flexi og Böbbi eiga pant­aðan tíma hjá húð­flúrs­meist­anum Jóni Páli klukkan 11 í fyrra­málið. Nú sitjum við því í rút­unni og hlustum á HAM, búnir að vera á ferð­inni í sirka hálf­tíma. Og Elu­veitie enn að spila. Það er fyndið. Meist­ara­fólkið á venjúinu sendi okkur af stað með sam­lokur og bjór. Við erum glaðir.

Frídagur á morgun já, eins og alla aðra mánu­daga. Við erum ekki mjög vanir svo­leiðis. Í fyrra túrð­uðum við 6 vikur og fengum tvisvar frí. Og það voru eig­in­lega ekk­ert frí vegna þess að þá þurftum við að keyra alveg ógeðs­lega langt. Þá túruðum við með vinum okkar í Finn­troll. Þeir eru finnskir. Elu­veitie eru frá Sviss. Ætli það sé ekki bara ástæðan fyrir þessu. Við vöknum í Barcelona og Robert ætlar mögu­lega að leggja sig ein­hver­staðar á leið­inni. Mér finnst reyndar að hann ætti að fara að finna vega­sjoppu því mig langar í ódýrt rauð­vín og alls­konar skrýtnar pylsur. Ég er alveg til í að þetta partý haldi áfram, við erum allir hér í betri stof­unni, glaðir og hreinir eftir dag­inn og allir vegir færir.

Meist­ara­legt dags­ins: Frábært gigg!

Sköll dags­ins: Þynnkan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár