Óttast var að ebólusmit hefði borist til landsins

Flugvél frá erlendu flug­fé­lagi lenti með ein­stak­ling, sem tal­inn var smit­aður af ebólu, á Kefla­vík­ur­flug­velli í dag. Unnið var sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun vegna ebólu, vegna ótta við að ein­stkling­ur­inn væri sýktur af ebólu. Þær áhyggjur reynd­ust hins vegar ekki á stoðum reistar, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra, sem send var fjöl­miðlum nú rétt í þessu. Til­kynn­ing­una má sjá hér að neðan.

Klukkan 13:13 barst almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra til­kynn­ing um að flug­vél hefði lent á Kefla­vík­ur­flug­velli með veikan ein­stak­ling. Grunur lék á að um ebólu smit­aðan ein­stak­ling hafi verið að ræða. Flug­vél­inni var lagt á flug­vernd­ar­svæði, sem er lokað svæði, á Kefla­vík­ur­flug­velli. Íslenskur læknir sem fór um borð í vél­ina hefur stað­fest að ekki er um ebólu­smit­aðan ein­stak­ling að ræða.

Unnið var eftir við­bragðs­á­ætlun vegna ebólu sem verið hefur í vinnslu und­an­farið. Sótt­varna­lækni var gert við­vart sem og Land­spít­ala og Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Sam­hæf­ing­ar­stöð­inni í Skóg­ar­hlíð og aðgerða­stjórn í umdæmi lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum voru virkj­aðar vegna atburð­ar­ins.

Flug­vélin var frá erlendu flug­fé­lagi og var ekki að koma frá einu að þeim þremur ríkjum þar sem ebóla er útbreidd. Maðurinn reyndis vera að koma frá Suður-Afríku og var ekki með ein­kenni sem sam­ræm­ast ebólu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár