Tvöfalt heilbrigðiskerfi býður upp á enn meiri mismunum

Á nýaf­stöðnu þingi Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) var sam­þykkt sam­hljóða ályktun þar sem tvö­földu heil­brigð­is­kerfi er hafnað. Í álykt­un­inni segir að slíkt bjóði aðeins upp á enn meiri mis­munum í sam­fé­lag­inu og rjúfi þjóð­ar­sátt um að allir Íslend­ingar eigi jafnan rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu. Til að und­ir­strika afstöðu sína enn frekar í mála­flokknum sendi ASÍ fjöl­miðlum fyrr­greinda ályktun í tölvu­pósti í dag, sam­hliða því að birta frétt um málið inn á heima­síðu sam­bands­ins. Álykt­un­ina er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan.

Höfnum tvöföldu heilbrigðiskerfi


Þing­full­trúar á 41. þingi Alþýðu­sam­bands Íslands krefj­ast þess að allir lands­menn hafi jafnan, óheftan aðgang að heil­brigð­is­kerf­inu og geti sótt sér nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og lyf óháð efna­hag og búsetu.

Þing­full­trúar hafna alfarið tvö­földu heil­brigð­is­kerfi og benda á að nú þegar er sú staða uppi að efna­m­inna fólk þarf að neita sér um heil­brigð­is­þjón­ustu og lyf vegna kostn­aðar á meðan þeir efna­meiri geta keypt sér for­gang og betri þjón­ustu. Með þessu er rof­inn ára­tuga sam­fé­lags­sátt­máli um aðgengi allra að heil­brigð­is­þjón­ustu.

Heil­brigð­is­kerfið á að fjár­magna úr sam­eig­in­legum sjóðum og nauð­syn­legt er að for­gangs­raða í opin­berum rekstri svo öllum verði aftur tryggð heil­brigð­is­þjón­usta í fremstu röð. Til þess þarf m.a. að hefj­ast nú þegar handa við bygg­ingu á nýjum Land­spít­ala.

Lækka verður taf­ar­laust beina greiðslu­þátt­töku ein­stak­linga í heil­brigð­is­kerf­inu sem er komin út yfir öll þol­mörk og eykur fjár­hags­lega og heilsu­fars­lega mis­skipt­ingu.

Áherslur ASÍ:


  • Allir lands­menn hafi jafnan aðgang að bestu fáan­legu heil­brigð­is­þjón­ustu

  • Kostn­aður sjúk­linga komi aldrei í veg fyrir að fólk geti sótt sér nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu, lyf og hjálp­ar­tæki.

  • Við höfnum alfarið tvö­földu heil­brigð­is­kerfi


Verkefni:

  • End­ur­skoða þarf greiðslu­þátt­töku­kerfið í heil­brigð­is­þjón­ust­unni með það að mark­miði að setja þak á heil­brigðis­kostnað fjöl­skyldna á hverju 12 mán­aða tíma­bili.

  • Til lengri tíma skal stefna að því að heil­brigð­is­þjón­ustan verði gjald­frjáls.

  • Efla þarf heilsu­gæsl­una, stytta bið­tíma og tryggja öllum heim­il­is­lækni.

  • Hefja þegar fram­kvæmdir við nýjan Land­spít­ala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár