Mikil leynd hvílir yfir hópuppsögnum á Flateyri

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Arctic Oddi á Flateyri hefur sagt upp tíu starfs­mönnum, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans stendur til að segja fimm starfs­mönnum upp störfum til við­bótar. Fram­kvæmda­stjór­ara Arctic Odda var sagt upp á dög­unum, fjórum var sagt upp á mið­viku­dag­inn, og fimm misstu vinn­una á föstu­dag­inn.

Hjá Arctic Odda hafa starfað um þrjá­tíu manns, þannig að fyr­ir­tækið er að fækka starfs­mönnum sínum um helm­ing. Heim­ildir Kjarnans herma að fyr­ir­tækið hygg­ist segja upp nær öllu starfs­fólki sínu á næstu mán­uðum, og loka fisk­vinnslu sinni á Flateyri, í það minnsta tíma­bundið. Þá verður skrif­stofa fyr­ir­tæk­is­ins flutt frá Flateyri til Reykja­víkur.

Samkvæmt heim­ildum mbl.is stendur sömu­leiðis til að selja skip í eigu Vest­firð­ings, sem er útgerð­ar­fé­lag í eigu sömu aðila og eiga Arctic Odda, en þá munu fimm starfs­menn til við­bótar missa vinn­una.

[quote font="0" align="right"]"Við höfum fengið mjög mis­vísandi skila­boð frá fyr­ir­tæk­inu. Þessar upp­sagnir vekja upp stórar spurn­ingar sem við verðum að fá svör við. Hvað ætla þessir menn í raun og veru að gera?"[/quote]

Bæjaryfirvöld óupplýst um uppsagnir


Í sam­tali við Kjarnann kveðst Gísli Halldór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar, ekk­ert hafa heyrt af upp­sögn­unum frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu. "Ég er búinn að senda stjórn­ar­for­mann­inum tölvu­póst til að for­vitn­ast um málið, og svo verð ég í sam­bandi við Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga í dag vegna máls­ins," segir Gísli Halldór. Hann segir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið hafa full­vissað bæj­ar­yf­ir­völd Ísa­fjarð­ar­bæjar og full­trúa frá Byggða­stofnun á fundi á þriðju­dag­inn, að ekki stæði til að ráð­ast í hóp­upp­sagnir hjá fyr­ir­tæk­inu um mán­að­ar­mótin, þannig að fréttir af upp­sögnum hjá Arctic Odda komi mjög á óvart og séu bein­línis í and­stöðu við yfir­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins. "Við höfum fengið mjög mis­vísandi skila­boð frá fyr­ir­tæk­inu. Þessar upp­sagnir vekja upp stórar spurn­ingar sem við verðum að fá svör við. Hvað ætla þessir menn í raun og veru að gera? Þetta eru mjög óþægi­leg tíð­indi, enda stærsti vinnu­stað­ur­inn á Flateyri, en auk þess höfðu íbúar bæj­ar­ins bundið miklar vonir við að fyr­ir­tækið ætl­aði að byggja upp fisk­vinnslu á svæð­inu."

Byggða­stofnun hefur gert for­svars­mönnum Arctic Odda það skýrt að félagið fái ekki úthlut­aðan 300 tonna byggða­kvóta, nema fyrir liggi fram­tíð­ar­sýn fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi bol­fisk­vinnslu á Flateyri. Gísli Halldór segir að fyr­ir­tækið hafi und­an­farið unnið að því að tryggja stoðir fisk­vinnsl­unnar, meðal ann­ars með því að leita að sam­starfs­að­ilum. Samhliða bol­fisk­vinnslu hugð­ist fyr­ir­tækið vinna eld­is­fisk, en fyr­ir­tækið hefur und­an­farið unnið að upp­bygg­ingu fisk­eldis, sem hefur tekið lengri tíma en vonir stóðu til að því er heim­ildir Kjarnans herma. Í til­kynn­ingu sem Arctic Oddi sendi frá sér um miðjan októ­ber hefur fyr­ir­tæk­inu gengið hægt að fá aukn­ingu eld­is­leyfa, sem það segir for­sendu þess að byggja upp arð­bæran rekstur á Flateyri.

Stéttarfélagið gerði athugasemdir við framkomu fyrirtækisins


Finnbogi Svein­björns­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, segir að stétt­ar­fé­lagið hafi sömu­leiðis ekk­ert heyrt frá Arctic Odda vegna upp­sagn­anna. Stétt­ar­fé­lagið gerði athuga­semdir við starfs­manna­fund sem hald­inn var hjá fyr­ir­tæk­inu í októ­ber, þar sem starfs­mönnum var til­kynnt um að mögu­lega yrði ráð­ist í upp­sagnir. "Við höfðum sam­band við fyr­ir­tækið, og gerðum alvar­legar athuga­semdir við að starfs­fólkið væri skilið eftir í svo mik­illi óvissu og raun ber vitni." Full­trúar stétt­ar­fé­lags­ins voru við­staddir annan starfs­manna­fund sem boðað var til 22. októ­ber síð­ast­lið­inn, þar sem fyr­ir­tækið til­kynnti að það myndi mögu­lega hætta bol­fisk­vinnslu á staðnum, en það myndi skýr­ast í lok mán­að­ar­ins. "Við furðum okkur á því að hafa ekk­ert heyrt frá fyr­ir­tæk­inu, því við lítum klár­lega á þetta sem hóp­upp­sögn þó fyr­ir­tækið sé að segja upp fólki í skömmtum."

"Ef satt reyn­ist þá er þetta enn ein birt­inga­mynd frjáls fram­sals afla­heim­ilda í sinni verstu mynd. Við erum með gjöf­ul­ustu fiski­miðin hér úti fyrir tún­fæt­inum, öll tæki og tól til vinnslu, en engar heim­ildir til að veiða," segir Finnbogi í sam­tali við Kjarnann.

Arctic Oddi hyggst nú ein­beita sér að kjarna­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, það er fisk­eldi. Fyr­ir­tækið hefur eld­is­fisk til vinnslu fram að ára­mótum, en fær ekki aftur eld­is­fisk til slátr­unar og vinnslu fyrr en í nóv­em­ber á næsta ári, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Ekki náð­ist í Sigurð Pét­urs­son, aðal­eig­anda Arctic Odda, við vinnslu frétt­ar­innar og engar upp­lýs­ingar feng­ust upp­gefnar á skrif­stofu félags­ins á Flateyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár