Pæling dagsins: Svart og hvítt hjá Bjarna og Árna Páli

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Tveir for­ystu­menn íslenskra stjórn­mála fluttu ræður fyrir bak­land sitt um helg­ina. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ávarp­aði flokks­ráðið í Valhöll og Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tal­aði til flokks­stjórn­ar­innar. Staða þeirra tveggja er ólík. Bjarni er lík­lega áhrifa­mesti stjórn­mála­maður lands­ins um þessar mundir, með mik­il­væg­ustu póli­tísku spilin á hendi, á meðan Árni Páll leiðir veik­burða Sam­fylk­ingu á Alþingi. Bjarni virð­ist hafa mik­inn og víð­tækan stuðn­ing í Sjálf­stæð­is­flokknum þessi miss­erin. Það er eng­inn sem ógnar stöðu hans, eftir að leka­málið veikti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur umtals­vert. Hún var í sterk­ari stöðu fyrir það mál. Það er lítil sam­keppni fyrir Bjarna, ef svo má að orði kom­ast. Síðan hefur Bjarni líka hag­töl­urnar úr hafta­hag­kerf­inu með sér í liði. Flestir vísar eru góðir, en það er einn var­nagli; fjár­magns­höftin. Bjarni tal­aði mjög skýrt um mik­il­vægi þess að afnema þau, sagði þau and­stöðu frjáls mark­aðasbú­skapar og að tíð­inda væri að vænta. Árni Páll fann stöð­unni hins vegar allt til forráttu. Staðan væri óboð­leg, rík­is­stjórnin væri bara fyrir ríka fólkið og að von­leysi ríkti. Ekki fyrir svo löngu síðan voru þessir flokkar í ólíkri stöðu, en mál­flutn­ing­ur­inn var svip­aður. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, tal­aði fyrir því að hag­töl­urnar væru góðar (og þuldi þær iðu­lega upp í löngu máli!) á meðan Bjarni, þá í stjórn­ar­and­stöðu, sagði stöð­una afleita. Það er ekki svo gott að segja hvernig þetta er í reynd núna, þó flest bendi til þess að hag­kerfið sé á réttri leið. Stjórn­mála­menn­irnir eru ekki alltaf með putt­ann á púls­inum þegar kemur að stöðu­mat­inu. Því þeir reyna alltaf að draga upp mynd sem hentar til atkvæða­veiða...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár