Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Romagnano

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Romagnano


Við höfum spilað hér áður. Við spil­uðum hér í fyrra. Í minn­ing­unni var þetta alveg ógeðs­legur staður en þetta var ekki alveg eins slæmt og mig minnti. Senni­lega var ég bara svona hakk­aður af þynnku síð­ast. Starfs­fólkið var ekk­ert eins hellað og mig minnti, mat­ur­inn var svona meh, og við­mótið fínt. Já, ég dreg í land með það, starfs­fólkið var ljóm­andi. En nú er túr­inn svo sann­ar­lega kom­inn af stað, þetta var fyrsti svona „venju­legi“ dag­ur­inn og allt er að kom­ast í skorður.

Innslag: Rétt í þessu var Angry Mike, bíl­stjóri stóru rút­unnar, að kom­ast að því að ég eigi von á barni. Hann er nú búinn að lýsa því fyrir mér í smá­at­riðum hversu risa­stórar hreðjar hans barns eru. Það langstærsta við barnið, segir hann. Angry Mike er ótrú­legur maður. Hann keyrði okkur á túr 2011 og er alltaf reiður. Hann talar hratt og mikið, notar of mörg orð yfir ein­falda hluti og er ofboðs­lega upp­stökkur. En hann er ekki slæmur gaur.

En já. Elu­veitie halda áfram að brúka þennan hel­vítis trommu­pall. Sviðið í dag var ööör­lítið stærra en í gær, en pall­ur­inn tók samt sem áður sirka helm­ing­inn af því. Við höfðum trommu­settið okkar þó fyrir miðju en þar með var svo gott sem ófært milli sviðs­kanta. Ég sá Baldur til að mynda ekk­ert fyrr en eftir gigg bara. Og hann svona mynd­ar­legur og ber að ofan. Við not­uðum nýja fán­ann í fyrsta skipti. Hann kom ein­stak­lega vel út.

[caption id="attachment_11100" align="align­right" width="300"] Þær eru fal­legar, þung­arokkslapp­irnar.[/caption]

Við fengum gesti. Reynir heitir maður og er búsettur ein­hver­staðar á Ítalíu. Við þekkj­umst svo­lítið, en ég man ekki alveg af hverju eða hvernig það kom til. Við höfum mest verið í sam­skiptum yfir netið en þó hist nokkrum sinnum. Hann kom við þriðja mann og eftir gigg sett­umst við á kaffi­sjoppu rétt hjá tón­leika­staðnum og spjöll­uðum lif­andis hell­ing. Já, reyndar voru þeir bara tveir þar, Reynir og annar vin­ur­inn. Hinn vin­ur­inn var fulli gaur­inn. Það var eitt­hvað við það að spila tón­leika á föstu­dags­kvöldi á Ítalíu og eini gaur­inn með vesen skuli vera Íslend­ingur. Við héldum svo til baka þegar Elu­veitie voru að klára og þá bentu dyra­verðir stað­ar­ins góð­lega á að hinn ofur­fulli Íslend­ingur væri hálfa hárs­breidd frá því að enda í lög­reglu­bíl. Reynir og minna fulli vin­ur­inn leystu þetta mál af festu og við kvödd­umst fal­lega.

Giggið sjálft var ljóm­andi fínt, fyrir utan þetta sam­bands­leysi milli manna. Var ég búinn að nefna hel­vítis trommu­pall­inn hjá Sviss­unum? Helvítis hel­víti! En jájá, þetta gekk vel, við þurftum aðeins að draga fólk til okkar en það gekk eftir þegar við höfðum öskrað smá á þau. 45 mín­útur liðu eins og 15 og ég kom löð­ur­sveittur af sviði. Ég er ennþá í sama bolnum og ég var í á Leifstöð fyrir 3 dögum og ég er búinn að spila tvenna tón­leika í honum. Og sömu brók­inni. Þetta öskrar á sturtu. Vonandi verður svo­leiðis í Lyon á morgun. Það er reyndar sturta hér, en hún er líka kló­sett. Jebb, sturtu­haus á veggnum, gat í gólf­inu og takki til þess að sturta niður. Shitaly. Það kalla rokk­ar­arnir Ítalíu á ferðum sínum. Orðagrín. Allir eru Laddi.

[caption id="attachment_11101" align="alignleft" width="300"] Þráinn Árni Bald­vins­son úr Torfu­nesi í Kinn, er hér alveg sér­stak­lega svalur með sól­gler­augu.[/caption]

Á Ítalíu er starf­ræktur lít­ill aðdá­enda­klúbbur Skálmaldar og við bræður hlóðum í eitt við­tal við tvo unga drengi vegna þess. Það var átaka­laust og strák­arnir kurt­eisir og þakk­látir. Skemmti­legt að sjá hvernig við hlöðum jafnt og þétt utan á okkur aðdá­endum. Við erum kannski ekki stærsta band í heimi en stað­reyndin er að alltaf bæt­ast fleiri í hóp­inn. Gald­ur­inn er að spila og spila og spila og spila. Það verður eng­inn rokk­stjarna á einni nóttu. Og við senni­lega aldrei. En þetta er gaman.

Það er aðeins kurr í mann­skapnum. Þeir sem leiða her­búðir Sviss­lend­ing­ana eru svolitlir gikkir. Ætla ekki að ganga alveg svo langt að kalla þetta rokk­stjörnu­stæla, en ég gæti þó alveg gert það. Tillitið til minni band­anna er nákvæm­lega ekk­ert, og sam­skiptin pínu stirð. Þetta er auð­vitað ekki nema rétt farið af stað og von­andi liðkast þetta allt saman því ég nenni ekki svona attitúdi. Það skal tekið fram að lang­flestir eru mjög næs, en þeir sem ráða eru líka oft leið­in­leg­astir. Við höfum hins­vegar mjög ágæt sam­skipti við Rússana, þau hjálpa okkur og við þeim. Anton, far­ar­stjóri þeirra og hljóð­maður, er meist­ara­legur og hann er til í að láta hlut­ina ganga. Annar mik­il­vægur banda­maður er móntormix­ermaður Sviss­lend­ing­ana, öðling­ur­inn hann Marci. Hann er mað­ur­inn sem sendur upp og sækir eitt­hvað fyrir mann, talar okkar máli þegar verið er að éta okkur út á gadd­inn og er bara svo vina­legur. Hann hefur engar skyldur gagn­vart okkur, hann er bara svo óskap­lega góður maður og vinur okkar til margra ára. Fyrsti frí­dagur túrs­ins er á mánu­dag­inn og Marci er nú þegar búinn að ganga frá því að við eyðum honum í Barcelona. Hann langar til að fá sér í könnu með okkur segir hann. Það hentar frá­bær­lega því tveir af okkur eiga pant­aða húð­flúrs­tíma þar í borg klukkan 11 á mánu­dags­morgun.

Við seldum varn­ing langt umfram vonir í kvöld. Cat sér um að selja dótið okkar og Arkona og hún virð­ist svo sann­ar­lega vera að vinna fyrir kaup­inu sínu. Vinaleg stelpa sem gott er að hafa í sínu liði. Lokin á kvöld­inu fóru svo í að drekka aðeins með bönd­unum. Söngvari Elu­veitie, Chrigel, er svona líka ljóm­andi gaur. Elu­veitie er bandið hans, hann stofn­aði sveit­ina fyrir 12 árum og hann heldur um taumana. Hann er áhuga­samur og hress, veit furðu­mikið um Skálmöld og Ísland og hann langar í brenni­vín og hákarl. Við leysum það um miðjan túr þegar við fáum gesti að heiman. Þessi síð­asta stund með þessu ágæta fólki orsak­aði það að ég gat ekki skrifað þennan pistil á réttum tíma. Ég er að svindla. Ég er skít­þunnur og við lentir í Lyon dag­inn eftir. Hitt hefði aldrei gengið.

Far­ang­urs­málið ógur­lega var leyst í dag (jájá, í gær) og á tón­leika­stað­inn mætti sendi­ferða­bíll sem tók hell­ing af drasli. Ég veit ekki hvort þetta verður planið fram­vegis, en við erum alla­vega lausir við dót og vesen.

Meist­ara­legt dags­ins: Maður Reynir (sláið inn „Maður Reynir“ á YouTube).

Sköll dags­ins: Margir dagar frá síð­ustu sturtu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár