Kjarninn eflist, Hjálmar Gíslason leiðir hóp nýrra hluthafa

Kjarninn miðlar ehf., félag sem á og rekur Kjarnann, hefur lokið hluta­fjár­aukn­ingu. Hjálmar Gíslason leiðir hóp fjár­festa með mikla reynslu af frum­kvöðla­starf­semi og upp­bygg­ingu nýrra fyr­ir­tækja sem koma nú inn í eig­enda­hóp Kjarnans. Hjálmar verður auk þess for­maður nýrrar stjórnar Kjarnans. Þá munu ýmsir sér­fræð­ingar sitja í ráð­gjafa­ráði Kjarnans, en hlut­verk þess verður að vera stjórn­endum og stjórn Kjarnans innan handar og til aðstoðar við að hrinda í fram­kvæmd nýjum verk­efnum.

Stofn­endur og starfs­menn Kjarnans munu áfram eiga rúman meiri­hluta í félag­inu (67 pró­sent). Til­kynn­ing um breyt­ingu á eig­enda­hópi Kjarnans hefur verið send Fjöl­miðla­nefnd líkt og lög gera ráð fyrir.

Fjölmörg tækifæri


[caption id="attachment_11093" align="align­right" width="279"] Hjálmar Gíslason, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Data­mar­ket, leiðir hóp nýrra fjár­festa sem keypt hafa hlut í Kjarn­anum. Hjálmar er nýr stjórn­ar­for­maður Kjarnans.[/caption]

Hjálmar Gíslason, stjórn­ar­for­maður Kjarnans segir Kjarnann fyrst og fremst vera afburða fjöl­miðil. „Á rétt rúmu ári hefur þessum hópi tek­ist að byggja upp öfl­ugan, gagn­rýn­inn og grein­andi fjöl­miðil og vöru­merki sem fólk treystir. Við sjáum fjöl­mörg tæki­færi til að byggja á þessum grunni, ekki síst í þeim breyt­ingum sem bæði fjöl­miðla- og aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn eru nú að ganga í gegnum. Það fylgir því mikið frelsi og hag­kvæmni að ein­beita sér að staf­rænni miðlun en vera ekki bund­inn við ljós­vaka- eða prent­miðla. Á sama tíma er íslenski mark­að­ur­inn frekar óþrosk­aður þegar kemur að net­inu, sér­stak­lega hvað varðar aug­lýs­inga­miðlun. Ég hef sagt Kjarnateym­inu það ítrekað í þessu ferli að ef ég væri að hugsa um að stofna fyr­ir­tæki í dag, yrði það lík­lega fjöl­miðla­fyr­ir­tæki.“

Hjalti Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Kjarnans segir aðkomu þessa öfl­uga hóps fjár­festa vera mikla við­ur­kenn­ingu á þeirri ómældu vinnu sem stofn­endur Kjarnans, og þeir sem hafa starfað fyrir mið­il­inn, hafa lagt á sig. „Nú er Kjarninn loks að verða full­orð­inn. Við hlökkum mikið til að byrja að vinna með Hjálmari og félögum. Aðkoma þeirra, þekk­ing og reynsla gerir okkur kleift að sækja fram af miklum krafti næstu miss­erin og nýta þau fjöl­mörgu staf­rænu tæki­færi sem breytt neysla á fjöl­miðum hefur leitt af sér.“

Tækifæri í gjörbreyttu fjölmiðlalandslagi


Fyrir mán­uði síðan, hinn 2. októ­ber, steig Kjarninn fyrsta skrefið í sókn sinni með því að kynna til leiks nýjan og öfl­ugan frétta­vef sem sinnir dag­legri frétta­þjón­ustu. Samhliða hófst útgáfa dag­legs frétta­bréfs Kjarnans auk þess sem hlað­varps­út­gáfa hans var efld. Í nóv­em­ber munu sex mis­mun­andi hlað­varps­þættir vera á dag­skrá í hverri viku. Viðtökur við þessum breyt­ingum hafa verið framar vonum.

Á næst­unni mun Kjarninn renna enn fleiri stoðum undir þann grunn sem þegar er til staðar og nýta þau tæki­færi sem fel­ast í gjör­breyttu fjöl­miðla­lands­lagi til að skapa sterkt Kjarna­sam­fé­lag, með áfram­hald­andi áherslu á gagn­rýni, gæði og dýpt í efn­is­tökum.

Eigendur Kjarnans að lok­inni hluta­fjár­aukn­ingu eru:

Miðeind ehf., í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar (13,7 pró­sent), Magnús Hall­dórs­son (13,0 pró­sent), Þórður Snær Júl­í­us­son (13,0 pró­sent), Ægir Þór Eysteins­son (11,5 pró­sent), Gísli Jóhann Eysteins­son (11,5 pró­sent), Hjalti Harð­ar­son (11,5 pró­sent), HG80 ehf. í eigu Hjálmars Gísla­sonar (8,1 pró­sent), Fagri­skógur ehf., í eigu Stefáns Hrafn­kels­sonar (6,3 pró­sent), Ágúst Ólafur Ágústs­son (5,0 pró­sent), Jónas Reynir Gunn­ars­son (3,2 pró­sent) og Birgir Þór Harðason (3,2 pró­sent).

Stjórn Kjarnans skipa Hjálmar Gíslason stjórn­ar­for­maður, Guðrún Inga Ing­ólfs­dóttir og Vil­hjálmur Þor­steins­son.

Ráð­gjafa­ráð Kjarnans skipa Ágúst Ólafur Ágústs­son, Hjalti Þór­ar­ins­son, Ragn­heiður M. Magn­ús­dóttir, Rakel Tóm­as­dóttir og Stefán Hrafn­kels­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár