Pæling dagsins: Húrra fyrir pylsugerðarmanninum!

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það er alltaf aðdá­un­ar­vert þegar mik­ill metn­aður er lagður í verslun og þjón­ustu inn í íbúa­hverfum. Mörg dæmi eru um metn­að­ar­fullar búðir víða um land sem ekki eru hluti af risa­vöxnum smá­sölu­fyr­ir­tækjum og stór­mörk­uðum. Eitt fyr­ir­tæki er gott dæmi um þetta. Það er Pylsu­m­eist­ar­inn Hrísa­teigi 47, við Laugalæk. Vörurnar þar, pylsur af ýmsu tagi þar sem nostrað hefur verið við fram­leiðslu og kjöt­vinnslu, eru hrein­asta lost­æti. Þá er þjón­ustan afbragðs­góð, vöru­merkið "kúl" og bréf­poka­um­búðir um pyls­urnar eit­ur­snjallt sér­kenni. Stundum er gaman að pæla í litlu hlut­unum líka en ekki aðeins stjórn­mál­unum og gang­inum í efna­hags­málum. Það er þakk­ar­vert að fólk sé til­búið að bjóða upp á afbragðs­þjón­ustu í litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum í nærum­hverf­inu, með nostri og mik­illi fag­mennsku. Pylsu­m­eist­ar­inn er gott dæmi um þetta.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár