Slysið hjá Virgin breytir engu um áform Gísla að fara út í geim

"Þetta er auð­vitað hræði­legur atburður, en kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Þetta er nú einu sinni geim­ferð, ekki sunnu­dags­bíltúr. Þetta slys breytir engu um áform mín að fara út í geim." Þetta segir Gísli Gíslason, inn­flytj­andi Tesla-raf­bíl­anna á Íslandi, í sam­tali við Kjarnann.

SpaceShipTwo, geim­flug­vél Virgin Galactic, fórst í til­rauna­flugi í Mojave-eyði­mörk­inni í Kali­fórníu í gær. Flug­stjóri vél­ar­innar lést í slys­inu og aðstoð­ar­flug­maður hans slas­að­ist mikið. Sér­fræð­ingar telja að fyr­ir­hug­aðar flug­ferðir Virgin Galactic, félags í eigu auð­kýf­ings­ins Richard Branson, muni frest­ast um ein­hver ár vegna slyss­ins.

[caption id="attachment_11048" align="alignnone" width="2784"] Gísli Gíslason við höf­uð­stöðvar Virgin Galactic[/caption]

Frægir vilja út í geim


Um 700 við­skipta­vinir hafa þegar pantað sér geim­flug­ferð með Virgin Galactic, en þeirra á meðal er heims­frægt fólk á borð við Lady Gaga, Justin Bieber, Ashton Kutcher, Leonardo DiCaprio og þá hefur eðl­is­fræð­ing­ur­inn Stephen Hawking sömu­leiðis pantað sér far. Geim­flaug­inn tekur sex far­þega í hverja ferð, en geim­flug­fé­lagið hyggst fara eina ferð á dag út í geim þegar reglu­legt áætl­un­ar­flug hefst.

Árið 2011 pant­aði Gísli Gíslason sér far út í geim með Virgin Galactic, en Gísli átti að fara í eina af fyrstu ferðum geim­flug­fé­lags­ins á næsta ári. Geim­ferðin mun kosta Gísla um tutt­ugu millj­ónir króna. Í sam­tali við Kjarnann kveðst Gísli hafa fengið til­kynn­ingu frá Virgin Galactic skömmu eftir slysið, þar sem greint var frá slys­inu og hvernig það gerð­ist.

Segir slysið breyta engu hvað sig varðar


"Manni var óneit­an­lega brugðið, enda gæti vel verið að ég hafi þekkt flug­mann­inn sem lést, en nafn hans hefur ekki enn verið opin­berað. Ég er nátt­úru­lega búinn að hitta flesta þessa kalla í þjálfun­inni minni fyrir geim­ferð­ina," segir Gísli.

Gísli var meðal ann­ars við­staddur þegar höf­uð­stöðvar Virgin Galactic í Mojave-eyði­mörk­inni voru form­lega teknar í notkun fyrir þremur árum síðan. "Ég er í sam­bandi við stóran hóp vænt­an­legra geim­fara og við höfum átt í tölu­verðum sam­skiptum eftir slysið, en Richard Branson hefur full­vissað okkur um að hann sé ekki af baki dott­inn og þessu verði haldið áfram. Hann ætl­aði að fara í fyrstu ferð­ina sína út í geim, með börnin sín tvö, fyrir ára­mót, en ætli því seinki nú ekki aðeins."

[caption id="attachment_11046" align="alignnone" width="1459"] Hópmynd af vænt­an­legum geim­förum við vígslu höf­uð­stöðva Virgin Galactic í Mojave-eyði­mörk­inni í Kali­fórníu.[/caption]

Löngu vitað að geimferðir séu hættulegar


Eins og áður segir hefur Gísli und­ir­geng­ist strangar æfingar hjá Virgin Galactic, til að búa hann sem best undir geim­ferð­ina. "Ég próf­aði til að mynda 6,4 G þyngd­ar­aukn­ingu einu sinni, og er trú­lega eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur prófað slíka þol­raun. Þar var verið að prófa hvort ég myndi þola hröð­un­ina sem verður í flug­inu og hvort ég myndi halda með­vit­und, en þá förum við úr núll kíló­metra hraða upp í 4.000 kíló­metra hraða á klukku­stund, á aðeins 70 sek­úndum. Ef ég hefði ekki verið sann­færður um að ég myndi lifa þessa æfingu af, þá hefði ég verið full­viss um að ég væri að deyja."

Eins og áður segir er Gísli enn harð­á­kveð­inn í að fara í geim­ferð­ina þegar þar að kemur, þrátt fyrir slysið hjá Virgin Galactic í gær. "Það er löngu vitað að þetta er hættu­legt, geim­ferðir eru hættu­legar. Þetta breytir engu hvað mig varðar, því það var alltaf hægt að búast við því að svona gæti gerst."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár