Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Treviso

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Treviso


Ítalía. Ég get sagt með mjög sann­fær­andi röddu að ég hef aldrei spilað gigg á Ítalíu þar sem allt er í orden. Og heldur ekki í kvöld.

Eftir Fen­eyja­ferð­ina rúll­uðum við hér upp að tón­leika­staðnum í Treviso. Fyrstu mómentin fóru í að hitta fólk. Við rák­umst mjög fljót­lega á Rússana í Arkona. Við túruðum með þeim 2011 og þekkjum þau því ágæt­lega. Þetta er allt saman alveg ágætis fólk en þau eru alveg óskap­lega rúss­nesk. Þeim hefur þó farið heldur fram er kemur að ensku­kunn­áttu og tals­vert auð­veld­ara að eiga sam­skipti við þau nú en þá. En hversu veltalandi sem Rúss­arnir verða þá ein­kenn­ist hreim­ur­inn af þessu und­ar­lega kok­blást­urs-h-hljóði sem er eitt­hvað svo kómískt. En já, það var gaman að hitta þau aftur. Og svo hittum við vit­an­lega hitt bandið, stóra bandið á túrnum, sem kallar sig Elu­veitie. Þau eru frá Sviss og spila kelt­neskan þjóð­laga­metal. Þetta band er alveg tals­vert stórt og við erum vit­an­lega að hanga í rass­inum á þeim. Það gerir okkur kleift að spila á stærri stöðum og fyrir fleira fólk, en að sjálf­sögðu erum við litla bandið á túrnum.

[caption id="attachment_11041" align="align­right" width="300"] Björgvin Sig­urðs­son, Böbbi, söngv­ari Skálmaldar.[/caption]

Við hefjum alla tón­leika, minnst er fyrir okkur haft í alla staði og við höfum mest að sanna. Sem svo aftur hendar okkur ágæt­lega. Fljótt á litið eru þau alveg óskap­lega almenni­leg, þetta Elu­veitie-fólk. Þau eru átta tals­ins og til við­bótar við hefð­bundin rokk­hljóð­færi spila þau á alls­konar skondin instrú­m­ent, flautur og fiðlur og sekkja­pípur, bouzouki og hurdy gurdy, já og örugg­lega eitt­hvað fleira sem ég kann ekki að nefna. Útkoman er svona Eurovision-þung­arokk, afskap­lega vel fram­kvæmt og afgreitt. Við höfðum hitt einn með­lim­inn áður, Patrick, sem heils­aði upp á okkur í Barcelona þegar við vorum á túr með Finn­troll og Tý í fyrra. Patrick er óskap­lega ágætur maður, og í ljós kom að þau hin eru það svo sann­ar­lega líka. Fyrstu kynni voru hreint ágæt sem gleður óskap­lega. Við hittum líka Marci sem við túruðum með 2011. Hann er partur af krúinu og þar fer eðal­menni sem gerir mónitormix eins og eng­inn annar. Já, í stutt máli urðu þetta fagn­að­ar­fundir, bæði með gömlum vinum og nýjum.

Back Droppið skil­aði sér. Við fengum pakk­ann afhentan um leið og við komum í hús og það kom svo­lítið á óvart. Síðar kom svo í ljós að fleiri höfðu fengið pakka sendan hingað í dag sem átti eftir að draga heil­mikið á eftir sér. Sviðið á tón­leika­staðnum var hins­vegar svo agn­arsmátt að við höfum ekki fyrir því að hengja þennan nýja fána upp. Ítalía. Hér virkar ekk­ert.

Elu­veitie hefur ákveðið að ferð­ast með risa­stóran trommu­pall í þetta skiptið. Hann er á að giska 2,5x4 metrar og alveg mitt­is­hár. Merlin, trymb­ill þeirra Sviss­lend­inga, er ekki mikið fyrir að deila og því fáum við ekki að nota trommu­settið sem ofan á þessum palli er. Við og Arkona deilum trommu­setti og það þarf að stað­setj­ast fyrir framan þennan óskapnað sem pall­ur­inn er. Það verður sjálf­sagt ekki mikið mál í flestum til­fellum, en þegar sviðið er jafn­lítið og í dag er þetta alger­lega fárán­legt. Við brugðum það ráð að hafa settið úti í væng sviðs­hægri og hljóm­borðið á hinum end­anum. Við fjórir sem eftir vorum stokk­uðum okkur svo bara þar á milli og reyndum að grenn­ast eins og við gátum í dag til að kom­ast fyrir. Giggið var þröngt. En já, spólum aðeins til baka.

[caption id="attachment_11039" align="alignleft" width="300"] Stund milli stríða við rút­una, Axel hljóð­maður (til vinstri) og Jón Geir trommari.[/caption]

Tón­leika­hald­arar í Evrópu eru skyldugir til að fæða lista­menn sem spila á stöð­unum þeirra. Þessi dag­legi matur getur verið alveg gríð­ar­lega mis­jafn­lega góður og í dag var hann eig­in­lega hálf­gert ógeð. Von­brigðin voru þau að hann leit alveg ágæt­lega út, en djöf­ull sem þetta var nú allt ógeðs­legt. En það er svona, maður lætur sig bara hafa það. Sánd­tékkið fór svo auð­vitað út um þúfur. Hálf­las­inn tækja­kostur og alger­lega áhuga­lausir starfs­menn húss­ins sáu til þess að allt dróst von úr viti. Við hljóðprufum síð­astir og förum fyrstir á við. Þetta fyr­ir­komu­lag er alþekkt í tón­list­ar­heim­inum. Í dag hafði allt skol­ast svo óskap­lega til að við fengum óþol­andi stuttan tíma. Hljóðið á okkur var því allt annað en til­búið þegar hleypt var inn í húsið. Við tókum þessu af ró og spil­uðum út reynslu­spil­inu. Við erum líka rólegri í þessum efnum en oft áður því í fyrsta skipti túrum við núna erlendis með okkar eigin hljóð­mann, hann Flex, sem hefur tekið upp allar plötur Skálmaldar og fylgt okkur frá upp­hafi. Við höfum því banda­mann á tækj­unum, en ekki bara ein­hvern slembival­inn óvita sem húsið skaffar. Það er ómet­an­legt. Og alveg sér­stak­lega á Ítalíu. Við fórum því bara í rút­una og skiptum um föt. Og nei, við fengum ekki bún­ings­her­bergi. Við erum á Ítalíu mun­iði.

Við létum mót­lætið egna okkur og spil­uðum alger­lega frá­bært gigg. Allt var sirka eins og verst verður á kosið, utan þess að sal­ur­inn var þétt­fullur af fólki þegar við hófum leika. Við náum að rífa upp stemn­ing­una á stuttum tíma og þegar upp var staðið urðu þetta afskap­lega skemmti­legir tón­leikar, þrátt fyrir alls­konar upp­á­komur og tækniörðu­leika. Það setur svo sann­ar­lega tón­inn fyrir þessar vikur sem framundan eru. Um þetta snýst leik­ur­inn, spila alltaf í það minnsta 7% yfir getu. Kvöldið fór svo í að skoða hin böndin, drekka pínu bjór og í sig nýjar aðstæður. Arkona og Elu­veitie hljóm­uðu bara ágæt­lega í kvöld.

Eftir tón­leik­ana fór svo allt á hlið­ina. Við erum sum sé á okkar bíl, Arkona á svip­uðum, nema glugga­lausum og heldur minni, en Elu­veitie og tækniliðið fyllir stóra rútu. Aftan í öllum þessum bílum hanga svo kerrur undir dót. Eðli máls­ins sam­kvæmt túrar Elu­veitie með óhemju magn af drasli og dóti. Þegar þau komu hingað í morgun var kerran full, en hingað höfðu þau svo látið senda áður umræddan trommu­pall, sem og varn­ing, boli, peysur og fullt af öðru góssi. Þannig varð það ekki flókin stærð­fræði að draslið komst alls ekki allt í kerruna þeirra.

[caption id="attachment_11042" align="align­right" width="300"] Baldur Ragn­ars­son, gít­ar­leik­ari, er mynda­smiður. Þessi mynd af hundi í Treviso er nokkuð góð.[/caption]

Far­ar­stjór­inn heitir Tibor. Ég veit ekki mikið meira um hann, nema að hann er með skegg og gerði sér það að leik að vera frekar leið­in­legur í dag, var allt annað en hjálp­legur við sánd­tékkið og var almennt með dólg. Hann var hins­vegar alls ekki jafn­leið­in­legur nú í kvöld þegar í ljós kom að við hefðum laust pláss í okkar kerru. Hann var eig­in­lega bara mjög almenni­legur. Já eða sleikju­legur jafn­vel. Mér fannst það nú bara gaman, og ég lét hann biðja fal­lega. Þannig end­aði með því að kerran okkar er nú stapp­full af bolum og tækjum og tólum frá Elu­veitie, því ann­ars hefði ekki verið mögu­legt að koma þessu öllu milli staða. Ruglið virð­ist liggja hjá fyr­ir­tæk­inu sem átti að skaffa þeim kerru en kerran sem skil­aði sér var víst miklu minni en sú sem pöntuð var.

Sama fyr­ir­tæki á einmitt að sjá um að prenta út leið­ar­bæk­urnar fyrir þá sem eru á túrnum. Við höfum ekk­ert svo­leiðis fengið. Ég veit bara að við spilum aftur á Ítalíu á morgun og á tón­leika­stað sem við sóttum í fyrra en ég man ekk­ert hvað borgin/bær­inn/þorpið heitir. Ég man þó að umrætt venjú er alger­lega ógeðs­legt, lélegt, skítugt og illa mannað. Ég heyrði ein­hvern segja áðan að þangað væru milli 4 og 500 kíló­metrar.

Klukkan er rúm­lega fjögur og Robert er að skríða úr koju, enda búinn að hóta brott­för um þetta leyti. Það er best að ég muni eftir að segja honum að kerran er smekk­full af málm­þungu dóti. Strák­arnir eru fyrir löngu skriðnir í koju, fyrir utan Baldur sem var rétt í þessu að velta inn í bíl­inn. Ég er búinn að fá mér smá, hann tals­vert meira.

Og þá er Robert vakn­aður. Við keyrum af stað eftir smá. Þetta er byrjað.

Meist­ara­legt dags­ins: Þetta er byrjað. Það osom!

Sköll dags­ins: Ógeðs­legt venjú og matur sem ég myndi ekki einu sinni bjóða kett­inum mínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár