Íslandsmótið í skrafli fer fram um Airwaves-helgina

Íslands­mótið í Scrabble eða "skrafli" fer fram í Frið­ar­hús­inu á horni Snorra­brautar og Njáls­götu um næstu helgi, dag­ana 8. til 9. nóv­em­ber, eða um Airwaves-helg­ina svoköll­uðu. Orða­leik­ur­inn er vel þekktur víða um heim, og hefur verið vin­sæll borð­leikur í gegnum tíð­ina.

Þetta er annað árið í röð sem Íslands­mótið er haldið, en mótið í fyrra tókst með miklum ágætum. Um tutt­ugu manns tóku þátt í mót­inu í fyrra, en því lyktaði með því að Reynir Hjálm­ars­son stóð uppi sem sig­ur­veg­ari.

Að sögn Sigurðar Arents Jóns­sonar, tals­manns Skrafl­fé­lags­ins, sem hefur veg og vanda að skipu­lagn­ingu móts­ins, fer skrán­ing þetta árið vel af stað, en nú þegar hafa hátt í fjöru­tíu skrafl­arar skráð sig til leiks. Enn er hægt að skrá sig til þátt­töku með því að senda tölvu­póst á net­fangið skraflfelagid@gmail.com, en áhuga­samir geta einnig mætt fyrsta keppn­is­dag­inn og skráð sig til leiks. Skrán­ing­ar­gjald er 3.000 krónur. Vegleg verð­laun eru í boði fyrir efstu sætin, en sá sigrar sem hlýtur flesta vinn­ing­ana.

Tals­maður Skrafl­fé­lags­ins segir miklar eft­ir­vænt­ingar ríkja fyrir öðru Íslands­mót­inu meðal Skraflá­huga­manna. "Við fórum nú bara af stað með mótið í fyrra til að vekja enn og aftur athygli á þessum skemmti­lega leik. Við vorum nokkur sem spil­uðum Skrafl nokkuð mikið og vildum gera félags­skap úr þessu, og ákváðum þess vegna að blása til Íslands­móts. Við vonum bara að það verði jafn gaman í ár og í fyrra, og að ein­hverjum tak­ist að slá núver­andi Íslands­meist­ara við," segir Sigurður Arent Jónsson í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár