Björn Ingi hættir sem ritstjóri, mun leiða ný verkefni

Björn Ingi Hrafns­son er hættur sem rit­stjóri Pressunnar. Hann mun héðan af verða útgef­andi allra miðla Vef­pressunnar og leiða ný verk­efni á vefum fyr­ir­tæk­is­ins sem verða kynnt á næst­unni. Kristjón Kormákur Guð­jóns­son, frétta­stjóri Pressunnar, hefur tekið við sem rit­stjóri vef­mið­ils­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem barst rétt í þessu.

Kjarninn fjall­aði nýverið um að við­ræður hafi átt sér stað milli Vef­pressunnar og DV um sam­runa.

Tilkynning Vefpressunnar:


Kristjón Kormákur Guð­jóns­son hefur verið ráð­inn rit­stjóri Pressunnar. Kristjón hefur starfað hjá Vef­press­unni frá 1. júní 2012, fyrst sem blaða­maður en hann var ráð­inn sem frétta­stjóri þann 11. maí 2013. Hann tekur nú við sem rit­stjóri. Kristjón hefur aðal­lega feng­ist við frétta­skrif fyrir Pressuna en einnig skrifað á Bleikt og Eyjuna.

Björn Ingi Hrafns­son verður útgef­andi allra miðla Vef­pressunnar, Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt. Þá sér hann um sjón­varps­þátt­inn Eyjuna á Stöð 2, auk þess sem hann mun leiða ný verk­efni á vegum fyr­ir­tæk­is­ins sem nánar verða kynnt á næst­unni.

„Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun. Jafn­framt vil ég þakka Birni Inga Hrafns­syni frá­far­andi rit­stjóra og Arnari Ægissyni fram­kvæmda­stjóra Vef­pressunnar fyrir það traust sem þeir sýna mér með þess­ari ráðn­ingu og þetta mikla tæki­færi,“ segir Kristjón.

Kristjón bætir við að það sé hörku­vinna að stýra miðli sem alltaf er í loft­inu en á Vef­press­unni er afar öflug rit­stjórn sem er alltaf á vakt­inni.

„Það eru bæði spenn­andi og skemmti­legir tímar framundan og þetta er stærsta tæki­færi mitt á ferl­inum. Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka til að spreyta mig á rit­stjórn­ar­hlut­verk­inu. Við munum halda áfram að bjóða upp á fjöl­breytt hlað­borð af fréttum þar sem allir geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi“.

Kristjón hefur meðal ann­ars feng­ist við skáld­sögu­skrif, blaða­mennsku og hand­rita­skrif. Hann er búsettur í Hvera­gerði ásamt sam­býl­is­konu sinni og þremur dætrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár