Ný könnun: Langflestir vilja Jón Gnarr sem næsta forseta

Flestir Íslend­ingar vilja að Jón Gnarr taki við af Ólafi Ragnari Gríms­syni sem for­seti Íslands. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu könn­unar sem Frétta­blaðið gerði. Alls sögð­ust 47 pró­sent þeirra sem svör­uðu að þeir vildu Jón Gnarr sem næsa for­seta. Ragna Árna­dóttir var nefnd næstoft­ast, en níu pró­sent þeirra sem svör­uðu vilja hana í for­seta­stól­inn.

Í könn­un­inni var spurt: Hvern myndir þú vilja sjá sem næsta for­seta Íslands? Hringt var í 1.241 manns þangað til að 801 svar­aði. Alls tóku 34 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni afstöðu til spurn­ing­ar­innar með því að nefna til­tekið nafn. 58 pró­sent nefndu ekk­ert nafn og átta pró­sent kusu að svara ekki spurn­ing­unni.

Í sam­tali við Frétta­blaðið sagð­ist Jón Gnarr snort­inn yfir nið­ur­stöð­unni. Hann hafi ekki velt fram­boði yrir sér en segir að nið­ur­stöð­urnar verði til þess að hann muni leggj­ast undir feld og ræða málin við fjöl­skyld­una sína.

Jón Gnarr er annar helm­ingur Tvíhöfða, sem mun hefja göngu sína í hlað­varpi Kjarnans næst­kom­andi mið­viku­dag. SUm verður að ræða viku­lega hlað­varps­þætti sem hægt verður að nálg­ast á vef­síðu Kjarnans eða með því að ger­ast áskrif­andi í gegnum snjall­tæki. Það er gert með því að leita að „Kjarninn“ í öllum hlað­varpsöppum. Nánari upp­lýs­ingar verður hægt að nálg­ast á www.kjarninn.is á sama tíma og fyrsti þátt­ur­inn fer í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár