Davíð Oddsson: Þjóðin í hættu þegar óaldarlýður réðst á þingið

Davíð Oddsson segir að óalda­lýður hafi ráð­ist að þing­hús­inu og öðrum opin­berum bygg­ingum í þeim mót­mælum sem áttu sér stað á árunum eftir banka­hrun. Þjóðin hefði verið hætt komin. Hann segir einnig að ef flug­vél full af liðs­mönnum Ríkis íslam, sem í stað tann­bursta og svita­lykta­eyðis væru allir með vél­byssur, myndi vill­ast hingað til lands þá ættu slíkir far­þegar auð­veld­ara með að taka yfir Ísland en Jörundur hunda­daga­kon­ungur forðum daga.

Þetta kemur fram í Reykja­vík­ur­bréfi sunnu­dags­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins.

Vélbyssur, svitalyktareyðir og tannburstar


Bréf­rit­ar­inn, sem að þessu sinni er aug­ljós­lega Davíð Oddsson, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hefur bréfið á því að fara yfir þær ógnir sem stafa að heims­byggð­inni um þessar mundir og staldrar sér­stak­lega við Ríki íslam.

Hann setur þær aðstæður síðan fljótt í sam­hengi við þá umræðu sem átt hefur sér stað á Íslandi um byssu­eign lög­regl­unnar og land­helg­is­gæsl­unnar og gagn­rýnir harð­lega þekk­ing­ar­leysi þeirra sem hæst hafa látið í þeirri umræðu. Í bréf­inu segir: „Það er freist­andi að að trúa því, að litla Ísland geti eitt fárra full­valda ríkja sloppið ódýrt frá veru­leika sem aðrar þjóðir verða að horfast í augu við. Setjum upp það dæmi, að hingað stefndi flug­vél svipuð þeirri sem villt­ist á leið til Birming­ham. Engin leið er að koma í veg fyrir að sú vél lendi. Þá kæmi í ljós að hvert sæti hennar væri skipað góð­borg­urum frá Ríki íslams. Í stað tann­bursta og svita­lykt­areyðis væru þeir allir með vél­byssur, mun nútíma­legri en þær sem hingað bár­ust frá norska hjálp­ræð­is­hernum. Væri trú þeirra rétt, sem hæst buldi í, bæði í bloggi og blöðum, þá ættu fyrr­nefndir far­þegar hæg­ari leik á Íslandi nú en Jörundur hunda­daga­kóngur fyrir rúmum 200 árum.“

Óaldarlýður og þjóðin hætt komin


Í kjöl­farið rifjar Davíð upp Bús­á­hald­ar­bylt­ing­una og skýrslu sem Geir Jón Þórisson, fyrrum yfir­lög­reglu­þjónn, skrif­aði um hana. Skýrslan var send á fjöl­miðla í síð­ustu viku og hefur verið mikið gagn­rýnd, sér­stak­lega vegna þess að í henni eru mikið af per­sónu­upp­lýs­ingum um ein­stak­linga sem tóku þátt í ýmsum mót­mælum á árunum eftir hrun. Hefur lög­reglan verið ásökum um að stunda per­sónunjósnir auk þess sem hún sendi fyrir mis­tök út ein­tök af skýrsl­unni þar sem hægt var að sjá nöfn ein­stak­linga sem fjallað er um í skýrsl­unni sem áttu að vera yfir­strikuð og ógrein­an­leg.

[quote font="0" align="right"]Það eru aðeins 6 ár síðan óald­ar­lýður gerði árásir á íslenska þing­húsið og fleiri opin­berar bygg­ingar.[/quote]

Davíð segir að óalda­lýður hafi ráð­ist á opin­berar bygg­ingar í þessum mót­mælum og að þjóðin hafi verið hætt komin. „Það eru aðeins 6 ár síðan óald­ar­lýður gerði árásir á íslenska þing­húsið og fleiri opin­berar bygg­ingar. Hér hefur það tíðkast að heim­ila mót­mæl­endum að fara nærri mik­il­vægum bygg­ingum, eins og þing­hús­inu, sem hvergi er leyft ann­ars staðar. Hafa jafn­vel lög­fræð­ingar, sem vilja láta taka sig alvar­lega, sagt það hluta af rétt­inum til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi að fólk fái að vera í skot­færi við menn og mann­virki. Það gerði fyrr­nefndur hópur í skjóli almennra mót­mæla, sem ríku­legri ástæður voru til að færu fram, en oft­ast endranær í sögu lands­ins. En þar sem óald­ar­lýð­ur­inn, sem kveikti elda, kastaði eggjum, grjóti og saur í alþing­is­húsið, gerði það í illa fengnu skjóli hinna almennu mót­mæla, átti fámenn lög­reglan óhægt um vik. Álagið á hana var ógur­legt og fram­ganga hennar og still­ing ofur­mann­leg.

[caption id="attachment_10708" align="aligncenter" width="1024"] Fjölmörg mót­mæli voru við Alþing­is­húsið og aðrar opin­berar bygg­ingar á árunum 2008 til 2011. Skýrslu um mót­mælin, sem lög­reglan lét vinna og var birt opin­ber­lega í síð­ustu viku, hefur vakið hörð við­brögð.[/caption]

Ekki fór á milli mála að lýð­ur­inn, margir í þeim hópi grímu­klæddir, reyndi að brjóta sér leið inn í þing­húsið, Seðla­bank­ann, lög­reglu­stöð­ina og reyndu að brjóta rúður bif­reiðar for­sæt­is­ráð­herr­ans. Sums staðar var 5. her­deild til staðar til að auð­velda árás­ar­mönn­unum verkið. Á því leikur ekki lengur neinn minnsti vafi. Það mátti því ekki miklu muna þarna. Hvað hefði þessi tryllti lýður gert hefði hann náð mark­miði sínu að brjót­ast inn í þing­húsið? Fáir vilja kannski hugsa þá spurn­ingu til enda. En er virki­lega hægt eða leyfi­legt að forð­ast slíka úttekt og það mat? Því verður hver og einn að svara fyrir sig.

[quote font="0" align="right"]Ekki fór á milli mála að lýð­ur­inn, margir í þeim hópi grímu­klæddir, reyndi að brjóta sér leið inn í þing­húsið, Seðla­bank­ann, lög­reglu­stöð­ina og reyndu að brjóta rúður bif­reiðar for­sæt­is­ráð­herr­ans. Sums staðar var 5. her­deild til staðar til að auð­velda árás­ar­mönn­unum verkið.[/quote]

Umræður síð­ustu daga sýna að þeir eru senni­lega til, sem helst vildu banna að gerð væri úttekt á þessum alvar­legum atburðum og krefj­ast leynd­ar­hjúps yfir þá sem verst gengu fram eða tog­uðu í spotta á bak við tjöldin.

Þjóðin var þá mjög hætt komin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár