Gagnrýnir ótímabærar fullyrðingar Vísis-manna

"Okkur finnst að með þessum gjörn­ingi sé Vísir búinn að upp­fylla sam­fé­lags­legar skyldur sínar eins og kostur er." Þessi ummæli voru höfð eftir Pétri Haf­steini Pálssyni fram­kvæmda­stjóra fisk­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Vísis, í frétt sem birt­ist á Vísi í gær. Ummælin lét Pétur Haf­steinn falla í tengslum við yfir­töku Búlandstinds, félags í eigu heima­manna á Djúpa­vogi, á fisk­vinnslu Vísis á staðnum.

Eins og kunn­ugt er hefur Vísir ákveðið að hætta fisk­vinnslu á Djúpa­vogi um ára­mótin, en í vor lýsti fyr­ir­tækið því yfir að það myndi halda uppi vinnslu á staðnum í allt að ár. Brott­hvarf Vísis frá staðnum raun­gerð­ist því fyrr en vonir heima­manna stóðu til. Með Vísi hverfa rúm­lega 3000 tonn af afla­heim­ildum frá Djúpa­vogi, en árlega hafa verið unnin um 4000 tonn í bænum. Mót­væg­is­að­gerðir stjórn­valda hljóða upp á 588 tonn af afla­heim­ildum, það er 400 tonna afla­mark frá Byggða­stofnun og 188 tonn af hefð­bundnum byggða­kvóta, sem mest getur orðið 300 tonn.

Ótímabærar fullyrðingar um uppfylltar samfélagslegar skyldur


Andrés Skúlason, oddi­viti Djúpa­vogs­hrepps, furðar sig á áður­nefndum full­yrð­ingum fram­kvæmda­stjóra Vísis, og segir þær ótíma­bærar. "Ég veit svo sem ekki nákvæm­lega hvað merk­ingu við­kom­andi vill leggja í orðin sam­fé­lags­legar skyldur, en það sem ég veit er að fyr­ir­tækið er að fara með alla vinnsl­una af svæð­inu og um níu­tíu pró­sent af afla­heim­ildum frá staðnum. Þá eru 25 manns þegar búnir að missa vinn­una og að þeim með­töldum má kannski ætla að séu farnir allt að fimm­tíu manns í burtu og lang­flestir til Grinda­víkur. Það nátt­úru­lega sér hver heil­vita maður að slíkar aðgerðir hafa ekki jákvæð áhrif á sam­fé­lagið."

Andrés fagnar því að tek­ist hafi að koma félagi á lagg­irnar undir merkjum Búlandstinds, sem taki við vinnslu Vísis á Djúpa­vogi, og vonar að þar með séu þrjá­tíu störf þar tryggð til fram­búðar og hægt verði að auka umsvif fyr­ir­tæk­is­ins. "Það breytir því ekki að við erum ekki búin að sjá áhrifin af brott­hvarfi Vísis, þau munu ráð­ast á kom­andi vetri. Þá verður fyrst hægt að sjá að hve miklu leyti fyr­ir­tækið upp­fyllti sínar sam­fé­lags­legar skyldur," segir odd­viti Djúpa­vogs­hrepps í sam­tali við Kjarnann.

Óhress með mótvægisaðgerðir stjórnvalda


Andrés gagn­rýnir mót­væg­is­að­gerðir stjórn­valda vegna brott­hvarfs Vísis. "Við erum ekki sátt með þær úthlut­anir sem við höfum fengið í formi byggða­kvóta, enda taka þær ekk­ert mið af því ástandi sem uppi er. Svo bitu þeir nú höf­uðið af skömminni með því að úthluta okkur 194 tonnum og senda okkur svo leið­rétt­inga­skjal nokkrum dögum seinna þar sem þeir lækk­uðu úthlut­un­ina niður í 188 tonn. Á meðan er maður að horfa á önnur sveit­ar­fé­lög fá fullar úthlut­anir, eða 300 tonn, sem ég get full­yrt að hafa ekk­ert með þessar afla­heim­ildir að gera. Það eru ekki byggð­ar­lög sem hafa orðið fyrir áfalli í sjáv­ar­út­vegi."

Andrés segir brott­hvarf Vísis hafa komið róti á sam­fé­lagið. "Við erum 470 manna sam­fé­lag og það sér hver maður að fimm­tíu manns í burtu getur ekki verið jákvæð nið­ur­staða. Hér er hins vegar engan upp­gjafatón að finna frekar en fyrri dag­inn, það er ekk­ert í boði að gef­ast upp heldur ætla menn eins og áður að snúa bökum saman og vinna úr þeirri stöðu sem er uppi."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár