Borgarstjóri: Breiðholt á að vera Breiðholt, ekki Brooklyn

„Breið­holt á ekki að reyna að verða Brooklyn, Breið­holt á að vera Breið­holt,“ segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Því var á dög­unum velt upp á vef­síðu Kjarnans, í bak­her­bergi, hvort Breið­holt gæti orðið eins konar Brooklyn Reykja­víkur, það er haft sömu áhrif fyrir Reykja­vík fram­tíð­ar­innar og Brooklyn hefur haft fyrir New York á und­an­förnum árum. Þar er nú heims­þekktur suðu­pottur mann­lífs og sköp­unar.

Dagur segir Breið­holtið vera magnað og gott hverfi, og að þró­unin þar þessa dag­ana sé mjög áhuga­verð fyrir borg­ina. „Á síð­ustu miss­erum höfum við verið að styðja við ýmis­legt skap­andi í Breið­holti. Höfum opnað FabLab sem er tækni­vædd þrí­vídd­ar­hönnun í Eddu­felli, Nýlista­safnið er komið í Völvu­fell, við höfum fengið marga fram­úr­skar­andi lista­menn til að skreyta stærslu hús­gafla borg­ar­innar, einsog frægt er orðið. Auk þess höfum við skipað sér­stakan hverf­is­stjóra, tekið allar skóla­lóðir hverf­is­ins í gegn, efnt til verk­efnis um sí- og end­ur­menntun, farið í geð­rækt­ar­á­tak og svo fram­vegis. Á næst­unni mun von­andi lík­ams­rækt­ar­stöð fara í bygg­ingu, ÍR hefur verið að gera ótrú­lega fína hluti í mörgum greinum og Leiknir mun spila í úrvals­deild næsta sumar. Þegar við horfum á það að fyrir eru flottir skólar og gott sam­fé­lag, FB er sterkur fram­halds­skóli, ekki síst í list­greinum - þá er ekk­ert skrýtið að allt þetta leiði af sér þróun þar sem ungu og skap­andi fólki fjölgar, ég gæti trúað að áhuga­verðir veit­inga­staðir eða kaffi­hús muni fylgja í kjöl­farið og hverfið þró­ast á jákvæðan og upp­byggi­legan hátt,“ segir Dagur.

Hann segir íbú­ana í hverf­inu vera svo sann­ar­lega til í að efla jákvæða þróun hverf­is­ins, það hafi marg­sýnt sig og borg­ar­yf­ir­völd hafi sér­stakan metnað til þess að ýta undir og vinna betur með áhuga íbú­ana. „En ég ítreka að ég vona að það verði á for­sendum lífs­gæð­anna og sér­stöðu Breið­holts­ins, frekar en að við eltum ein­hverja eina fyr­ir­mynd,“ segir Dagur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár