Kaupþing greiðir mest allra - HB Grandi stærstur í sjávarútvegi

Kaupþing hf. greiðir hæstu opin­beru gjöldin á þessu ári eða rúm­lega 14,6 millj­arða króna. Á eftir Kaup­þingi kemur Lands­bank­inn með rúma 12,9 millj­arða króna og greiðir hann um fimm millj­örðum meira en gamli Lands­bank­inn, LBI, sem greiðir sam­stals rúmar 7,9 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra sem hefur lokið álagn­ingu opin­berra gjalda árs­ins 2014, en vefur Við­skipta­blaðs­ins, vb.is, greinir frá þessu í dag.

Fjöldi lög­að­ila á skatt­grunn­skrá á land­inu öllu í árs­lok 2013 var 38.110. Alls sættu 10.859 lög­að­ilar áætlun en til sam­an­burðar voru þeir 11.299 í fyrra.

Heild­ar­á­lagn­ing á lög­að­ila nemur 181.089.244.552 kr., en á árinu 2013 nam hún 121.322.881.575 kr.

Á vef Við­skipta­blað­iðs­ins er birtur listi yfir þá lög­að­ila sem greiða hæst opin­ber gjöld. Hann fer hér að neðan. Á list­anum eru rík­is­sjóður og flest stærri sveit­ar­fé­lög lands­ins, auk stærstu fyr­ir­tækja. HB Grandi greiðir hæst gjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, 1,7 millj­arða, en Samherji og Síld­ar­vinnslan, sem eru raunar tengd félög þar sem Samherji á stóran hlut í Síld­ar­vinnsl­unni, koma þar á eftir með 1,68 millj­arða og 1,38 millj­arða króna. Ein lög­manns­stofa er á lista yfir 40 stærstu greið­endur, Logos, með 418 millj­ónir króna.

Lögaðilar sem greiddu hæst opinber gjöld.



  1. Kaupþing hf. 14.644.588.444

  2. Lands­bank­inn hf. 12.915.826.346

  3. Glitnir hf. 11.892.915.408

  4. Rík­is­sjóður Íslands 9.810.099.648

  5. LBI hf. 7.964.176.081

  6. Arion banki hf. 7.550.536.603

  7. GLB Holding ehf. 6.168.171.045

  8. Íslands­banki hf. 5.575.353.828

  9. Reykja­vík­ur­borg 3.253.062.402

  10. Eigna­safn Seðlab. Íslands ehf. 2.108.524.112

  11. HB Grandi hf. 1.739.492.522

  12. Samherji hf. 1.688.842.216

  13. Síld­ar­vinnslan hf. 1.387.769.242

  14. Norðurál Grund­ar­tangi ehf. 1.094.996.212

  15. Ísfélag Vest­manna­eyja hf. 1.092.608.817

  16. Icelandair ehf. 963.679.204

  17. Össur hf. 911.262.214

  18. Skinney-Þinganes hf. 844.618.508

  19. Kópa­vogs­bær 822.557.533

  20. Icelandair Group hf. 806.389.811

  21. Vátrygg­inga­fé­lag Íslands hf. 722.224.413

  22. Akur­eyr­ar­kaup­staður 699.465.625

  23. Hagar versl­anir ehf. 694.092.409

  24. Vinnslu­stöðin hf. 628.666.862

  25. Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður 604.961.434

  26. FISK-Seafood ehf. 564.949.753

  27. Eskja hf. 533.172.237

  28. Reykja­nes­bær 528.034.118

  29. Isavia ohf. 462.049.918

  30. Samherji Ísland ehf. 442.688.302

  31. Borgun hf. 441.156.903

  32. Rammi hf. 434.606.543

  33. Logos slf. 418.348.677

  34. Spari­sjóður Reykja­víkur/nág hf. 401.319.400

  35. Trygg­inga­mið­stöðin hf. 387.727.069

  36. Brim hf. 386.060.955

  37. Alcoa Fjarðaál sf. 377.113.327

  38. Eimskip Ísland ehf. 375.901.755

  39. Advania hf. 371.479.904

  40. Marel Iceland ehf. 351.424.165


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár