365 sagði upp tíu, sjö konum og þremur körlum

Fjöl­miðla­sam­steypan 365 sagði upp tíu starfs­mönnum í gær, sjö konum og þremur körlum. Á meðal þeirra sem misstu vinn­una voru Hödd Vil­hjálms­dóttir sjón­varps­kona, Hanna Ólafs­dóttir blaða­maður og Jóhanna Margrét Ein­ars­dóttir frétta­maður.

Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365, segir í sam­tali við Kjarnann að þó vissu­lega hafi hallað á konur í upp­sögn­unum í gær, séu þær í minni­hluta þeirra sem misst hafi vinn­una í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum fyr­ir­tæks­ins und­an­farna þrjá mán­uði. Sævar segir að í upp­sögnum fyr­ir­tæk­is­ins nýverið hafi kynja­hlut­fallið verið um sjö­tíu pró­sent karlar, og um 30 pró­sent konur.

"Ég boð­aði það þegar ég tók við fyr­ir­tæk­inu að það yrði að ein­falda skipu­lag, hag­ræða og bæta rekstur félags­ins, aðgerð­irnar sem hafa verið í gangi und­an­farna mán­uði stað­festa að við höfum verið að vinna að þessu verk­efni."

Aug­lýs­inga­sala hjá 365 hefur verið undir vænt­ingum fyr­ir­tæk­is­ins und­an­farna mán­uði. "Aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn er mjög tengdur því sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu, og mín til­finn­ing er sú að við séum enn að bíða eftir að sam­fé­lagið fari almenni­lega í gang. Það vantar tölu­vert upp á það að þjóð­fé­lagið fari nú að tikka svo­lítið," segir Sævar Freyr í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár