Snjallsímar seljast áfram eins og heitar lummur

Snjall­síma­fram­leið­endur sendu frá sér 327,6 milljón síma um allan heim á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2014. Það er aukn­ing um 25,2 pró­sent miðað við þriðja árs­fjórð­ung í fyrra, sam­kvæmt gögnum IDC. Sala snjall­síma hefur einnig auk­ist á þessu ári. Merkja mátti 8,7 pró­sent aukn­ingu milli ann­ars og þriðja árs­fjórð­ungs.

Blikur höfðu verið á lofti um að snjall­síma­mark­að­ur­inn væri í hnignun und­an­farna mán­uði. Samkvæmt þessum tölum er það fjarri því að vera raunin. The Next Web greinir frá.

Enn fremur bæt­ist nýtt fyr­ir­tæki á lista stærstu fimm. Það er hið kín­verska Xiaomi sem skipar sér í þriðja sætið á þriðja árs­fjórð­ungi. Xiaomi dreifði 17,3 millj­ónum ein­taka af snjall­símum sínum. Þeirra vin­sælasta vara er Mi4-sím­inn sem settur var á markað í ágúst.

Android-símar Xiaomi eru vin­sæl­astir í aust­ur­löndum fjær en sér­fræð­ingar segja næstu tæki­færi fyr­ir­tæk­is­ins liggja í mörk­uðum í Evrópu og víðar í Asíu. Þar eru hins vegar fyrir sterk merki sem gætu reynst fyr­ir­tæk­inu erfitt að kné­setja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár