Leggjast gegn því að Breiðavíkurmistökin verði endurtekin

"Stað­setn­ing vist­heim­il­is­ins í Breiða­vík, á sínum tíma, var illa ígrunduð póli­tísk ákvörðun sem síðar kom í ljós að var kol­röng og eru með­ferðin og afleið­ing­arnar því til sönn­unar. Samtök vist­heim­ila­barna (SVB) mót­mæla því að sagan verði látin end­ur­taka sig með stofnun / end­ur­reisn á með­ferð­ar­heim­il­inu að Háholti í Skaga­firði."

Þannig hljómar opið bréf sem Samtök vist­heim­il­ar­barna hafa sent Eygló Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og var sent fjöl­miðlum í dag. Samtökin vilja að með­ferð­ar­heim­il­inu verði fund­inn staður í Reykja­vík, þar sem aðgengi að starfs­fólki með sér­fræði­þekk­ingu verði hvað best tryggt. Undir bréfið ritar Jón Magn­ús­son for­maður Samtaka vist­heim­ila­barna.

Bréf SVB í heild sinni


Opið bréf til Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Ágæti ráð­herra. Vegna umræðu um bygg­ingu með­ferð­ar­heim­ilis að Háholti í Skaga­firði, langar mig að biðja þig, ágæti ráð­herra, að lesa skýrslu Vist­heim­ila­nefndar.

Eins og fram kemur í þeirri skýrslu, sem er mjög ítar­leg, var ein­dregið lagst gegn stað­setn­ing­unni á vist­heim­il­inu í Breiða­vík með rökum sem eiga í dag einnig við um stað­setn­ing­una að Háholti í Skaga­firði.

Þetta hefur ekk­ert með það ágæta fólk að gera sem byggir þennan fallaga stað sem Skaga­fjörður er, heldur eru það hags­munir og öll sér­fræði­þjón­usta við börnin sem vega þyngst. Eins og fram hefur komið að und­an­förnu er sú þjón­usta sterk­ust í Reykja­vík. Stað­setn­ing vist­heim­il­is­ins í Breiða­vík, sínum tíma, var illa ígrunduð póli­tísk ákvörðun sem síðar kom í ljós að var kol­röng og eru með­ferðin og afleið­ing­arnar því til sönn­unar. Samtök vist­heim­ila­barna (SVB) mót­mæla því að sagan verði látin end­ur­taka sig með stofnun / end­ur­reisn á með­ferð­ar­heim­il­inu að Háholti í Skaga­firði.

Fyr­ir­byggja þarf með öllum til­tækum ráðum að börn verði aftur þolendur á borð við Breiða­vík­ur­drengi. þ.e. að þau verði fyrir barð­inu á illa ígrund­aðri pólístískri ákvörðun líkt og gert var varð­andi vist­heim­ilið í Breiða­vík 1952, en sú stað­setn­ing líkt og nú kom í veg fyrir að starfs­fólk með sér­þekk­ing­ingu á þeim sviðum sem þessi börn og ung­lingar þurfa á að halda, feng­ist til starfa við heim­ilið. Nauð­syn­legt er að ein af þeim nær­þjón­ustum sem þarf að vera til staðar er lög­reglan.

Enn í dag er fjöldi fólks sem á um sárt að binda sem afleið­ing vegna mis­taka sem röng pólítísk bit­linga­á­kvörðun um vistun barna á alger­lega kol­röngum stöðum var, þar sem allar með­ferðir voru alrangar og ótrú­leg harka og kunn­áttu­leysi þess ófag­lærðu starfs­fólks sem fékkst til starfa á þessum fjar­lægu stöðum. Öll umræða og fram­kvæmd Sann­girn­is­bóta­fer­ils­ins ber greini­lega merki um öll þau djúpu sár bæði á lík­ama og sál sem afleið­ing af rangri stað­setn­ingu vist­un­ar­heim­ils olli.

Það er ein­læg ósk Samtaka vist­heim­ila­barna að í þessu sam­bandi verði hlustað á þau rök sem þau bera fyrir brjósti af ein­lægni varð­andi vel­ferð barna og ung­linga þessa lands, með því að falla frá stofnun/end­ur­reisn vist­heim­il­is­ins að Háholti í Skaga­firði og ræði við Barna­vernd­ar­stofu um fag­lega rétta leið til úrlausna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár