Niðurskurður veldur frávísunum og uppsögnum

Vin­sæl­asti fram­halds­skóli lands­ins mun ekki geta tekið við fleiri en um 150 nýnemum haustið 2015, ef fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar verður sam­þykkt í núver­andi mynd. Verzlunarskóla Íslands hefur und­an­farin ár borist umsóknir hátt í 700 grunn­skóla­nema hvert sumar og hafa rúm­lega 300 nýnemar hafið skóla­göngu þar ár hvert.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem nú er til umræðu á Alþingi er gert ráð fyrir að nem­endum sem stunda fullt nám í fram­halds­skóla fækki á næsta ári. Verzlunarskólinn mun, líkt og aðrir skólar, þurfa að fækka í nem­enda­hópi sínum tölu­vert næsta haust. Ingi Ólafsson, skóla­stjóri í Verzló, hefur áhyggjur af hversu hratt fækk­unin á að eiga sér stað.

„Núna á að fækka svo ársnem­endum til okkar svo mikið sem verður til þess að við getum ekki tekið eins marga inn á næsta ári. Þetta er vegna þess að skóla­árið fellur ekki saman við almann­aks­árið, og þá um leið fjár­laga­árið,“ segir Ingi. „Þegar við und­ir­bjuggum yfir­stand­andi skólaár vorum við í raun að plana helm­ing­inn af almann­aks­ár­inu.“

[quote font="0" align="right"]„Núna á að fækka svo ársnem­endum til okkar svo mikið sem verður til þess að við getum ekki tekið eins marga inn á næsta ári. Þetta er vegna þess að skóla­árið fellur ekki saman við almann­aks­árið, og þá um leið fjár­laga­árið.“[/quote]

Þessi skyndi­lega fækkun á fjölda nem­enda verður ekki fengin með því að vísa nem­endum úr skóla heldur verður að fækka í hópi nýnema sem fá skóla­vist á næsta ári, til að mæta vænt­an­legum lögum.

„Það varð ákveðin skerð­ing á nem­enda­fjölda síð­ast­liðið sumar sem við gátum ekki brugð­ist við vegna þess hversu seint við fengum að vita af henni. Síðan verður enn frek­ari fækkun núna og við getum ekki brugð­ist við fyrr en næsta haust,“ segir Ingi enn fremur.

„Þannig að þeir nem­endur sem eru á fyrsta, öðru og þriðja ári, halda af sjálf­sögðu áfram á annað, þriðja og fjórða ár næsta vetur. Fækkunin verður því alfarið í hópi nýnema.“

Nám í Versl­un­ar­skól­anum hefur um ára­bil verið vin­sæl­ast meðal ung­menna sem hyggja á fram­halds­nám eftir gunn­skóla. Alls ósk­uðu 699 nemar um skóla­vist í Versló fyrir vet­ur­inn 2014-2015 en aðeins 308 fengu skóla­vist.

Ingi segir gagn­rýn­ina ekki snúa að frum­varp­inu sem slíku, heldur því hversu hratt inn­leið­ing breyt­ing­anna á að eiga sér stað. Þessi hraða inn­leið­ing gæti allt eins orðið til þess að segja verði upp kenn­urum.

Segir sig sjálft að kennsla minnkar


„Und­an­farin ár höfum við yfir­leitt verið að taka inn sirka tólf bekki en ef fjár­laga­frum­varpið fer óbreytt í gegn þá getum við ekki tekið inn nema hámark sex bekki. Það segir sig sjálft að um leið og við fækkum bekkjum um fimm til sex, þá minnkar kennslan,“ segir Ingi.

Hann kveðst enn ekki hafa lagst yfir það hvaða aðgerðir þurfi að fara í, enda haldi hann enn í von­ina um að breyt­ing verði gerð á þessu fyr­ir­komu­lagi. En, til þess gæti komið að segja verði upp kenn­urum vegna þessa.

[quote font="0" align="right"]„Það segir sig sjálft að um leið og við fækkum bekkjum um fimm til sex, þá minnkar kennslan.“[/quote]

„Nema hægt sé að gera tíma­bundnar ráð­staf­anir því ári seinna þurfum við aftur á mörgum kennar­anna að halda aftur. Á meðan þetta kemur í svona stóru stökki þá er bara einn árgangur sem verður svona rosa­lega fámennur.“

Þegar fjár­laga­frum­varp árs­ins 2015 er borið saman við fjár­lög árs­ins 2013 og 2014 sést að fram­lag til fram­halds­skóla hefur auk­ist nokkuð milli ára. Hluta þess­arar hækk­unar má rekja til þess að launa­lið­ur­inn í bók­haldi skól­anna hækk­aði eftir að fram­halds­skóla­kenn­arar sömdu um kjör sín síð­asta vor.

Ingi segir skól­ana að sjálf­sögðu fá launa­hækk­anir bættar. „Skól­arnir hafa verið í svo miklu fjársvelti und­an­farin ár, svo það er reynt að bæta það aðeins upp, meira að segja umfram launa­hækk­anir. Það er meðal ann­ars gert með því að nem­endur sem eru 25 ára og eldri fá ekki vísa skóla­vist í bók­námi í fram­halds­skólum. Þeir fjár­munir sem spar­ast við úthýs­ingu þess­ara nem­enda verða áfram í kerf­inu. Framlag til skól­anna á hvern ársnem­anda mun því hækka,“ segir Ingi.

Markmiðið að útskrifa fleiri nema


Ísland er með lægsta braut­skrán­ing­ar­hlut­fall af fram­halds­skóla­stigi af öllum OECD-lönd­unum, og langt undir með­al­tali land­anna. Illugi Gunn­ars­son, mennta­mála­ráð­herra hefur sagt það vera eitt meg­in­mark­miða ráðu­neyt­is­ins til að ná umbótum í mennta­málum að hækka hlut­fall þeirra sem útskrif­ast úr fram­halds­skólum á réttum tíma. Mark­miðið er að árið 2018 verði hlut­fall nem­enda sem útskrif­ast á réttum tíma 60 pró­sent.

Versl­un­ar­skól­inn hefur eitt besta braut­skrán­ing­ar­hlut­fall af íslenskum fram­halds­skólum enda hafa vin­sældir skól­ans valdið því að með­al­ein­kunn nýnema í skól­anum úr grunn­skóla er sú hæsta á Íslandi (9,06). Þá má gera ráð fyrir að bekkja­fyr­ir­komu­lag skól­ans auki líkur þess að nem­endur tolli í námi og braut­skrá­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár