Missa 3000 tonn í burtu, fá 588 tonn í staðinn

Fisk­vinnslu­fyr­ir­tækið Vísir hefur til­kynnt starfs­fólki sínu á Djúpa­vogi að fyr­ir­tækið muni hætta starf­semi sinni á staðnum um ára­mót. Vísir lýsti því hins vegar yfir í vor að fyr­ir­tækið ætl­aði að halda uppi vinnslu á Djúpa­vogi í allt að ár, þannig að brott­hvarf fyr­ir­tæk­is­ins frá staðnum raun­gerð­ist fyrr en vonir heima­manna stóðu til. Félagið Búlands­tindur, sem var stofnað af heima­mönnum á Djúpa­vogi, mun taka við fisk­vinnslu Vísis um næstu ára­mót. Vísir mun afhenda Búlandstindi fast­eignir sínar á Djúpa­vogi, sem metnar eru á fimm­tíu millj­ónir króna, án end­ur­gjalds verði þar stöðug fisk­vinnsla næstu fimm árin. Með gjörn­ingnum verður þeim þrjá­tíu starfs­mönnum sem nú starfa hjá Vísi á Djúpa­vogi tryggð áfram­hald­andi atvinna.

Tíma­setn­ingin á brott­hvarfi Vísis gæti reynst baga­leg fyrir Djúpavog, þar sem reynst getur erfitt að fá aðrar útgerðir á stað­inn þegar svo langt er liðið á yfir­stand­andi fisk­veiðiár. Búlands­tindur hefur und­an­farið unnið að því í sam­vinnu við bæj­ar­yf­ir­völd á Djúpa­vogi.

Högg Djúpavogs mikið


Með brott­hvarfi Vísis frá Djúpa­vogi hverfa rúm­lega 3000 tonn af afla­heim­ildum á þessu ári, en árlega hafa verið unnin um 4000 tonn í bænum. Mót­væg­is­að­gerðir stjórn­valda vegna þessa hljóða upp á 400 tonna afla­mark í gegnum Byggða­stofnun og 188 tonn af hefð­bundnum byggða­kvóta, sem getur mest orðið 300 tonn. Af þessu má ljóst vera að högg Djúpa­vogs vegna brott­hvarfs Vísis er þungt. "Það sér hver maður að þetta er hvergi nærri nóg og það að okkur skuli ekki einu sinni úthlut­aður fullur byggða­kvóti und­ir­strikar mein­bug­ina sem eru á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu eins og það er í dag," segir Gauti Jóhann­es­son sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps í sam­tali við Kjarnann.

Þessa dag­ana er unnið að end­ur­skoðun á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og í því sam­bandi hafa verið viðr­aðar hug­myndir um að festa afla­heim­ildir við ákveðin atvinnu­svæði eða byggð­ar­lög. "Þær hug­myndir eru allar athygli verðar. Hvaða leiðir sem verða fyrir val­inu þá er brýnt að lög­gjaf­inn spýti í lóf­ana og geri þær breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sem þarf til að tryggja festu í útgerð, fisk­vinnslu og búsetu í minni bæj­ar­fé­lögum um landið sé mönnum alvara með því að halda land­inu í byggð. Ef það er ekki mark­miðið þá verða menn að hafa póli­tískan dug til að segja það," segir sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps.

Vöruflutningabílar óku 144 þúsund kílómetra með aflann í burtu


Samkvæmt frétt Afla­frétta voru um 2.500 tonn af afla flutt með vöru­flutn­inga­bílum suður til Grinda­víkur í fisk­vinnslu Vísis í sept­em­ber. Hver flutn­ingatrukkur tekum um 20 tonn af afla, en vega­lengdin milli Grinda­víkur og Djúpa­vogs eru 576 kíló­metrar. Samkvæmt útreikn­ingum Afla­frétta þurftu því vöru­flutn­inga­bíl­arnir að aka 144 þús­und kíló­metra í 125 ferðum til að flytja 2.500 tonn af afla til Grinda­víkur.

"Djúpi­vogur hefur verið byggð­ar­lag í sókn, íbúum hefur fjölgað und­an­farin ár, hér er hæsta hlut­fall barna á leik­skóla­aldri í land­inu, skulda­staðan er undir við­miðum sveit­ar­stjórn­ar­laga og atvinnu­líf hefur verið með ágætum. Heil­brigð skyn­semi segir manni að svona til­fær­ingar ættu ekki að vera í boði,” segir Gauti Jóhann­es­son, sveit­ar­stjóri á Djúpa­vogi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár