Benedikt Erlingsson móðgaði Illuga á verðlaunaafhendingu

Kvik­myndin Hross í oss, í leik­stjórn Bene­dikts Erlings­sonar, hlaut kvik­mynda­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs við hátíð­lega athöfn í Stokk­hólmi í gær­kvöldi. Eftir að Benedikt hafði veitt verð­laun­unum við­töku, ásamt Friðriki Þór Frið­riks­syni fram­leið­anda mynd­ar­innar, hélt leik­stjór­inn þakk­ar­ræðu þar sem hann vand­aði íslenskum stjórn­völdum ekki kveðj­urnar.

Í ræðu sinni sagði Benedikt: "Kæru nor­rænu félagar, hér í salnum sitja íslenskir stjórn­mála­menn sem skáru niður fjár­fram­lög til kvik­mynda­gerðar um 42 pró­sent á þessu ári, en í kjöl­far efna­hags­hruns­ins skáru þeir fjár­fram­lögin niður um þrjá­tíu pró­sent. Þannig að við erum stödd í miðri kata­st­rófu. Þannig að við myndum meta það mik­ils ef þið gætuð hjálpað okkur í eft­irpartý­inu með því að nálg­ast þá kurt­eis­is­lega og fræða þá um kvik­myndir og menn­ingu, tala við þá um Íslend­inga­sög­urnar og segja þeim að við sem erum að búa til sögur, séum líka að búa til Íslend­inga­sögur, norskar sögur og danskar sögur, þó þær séu ekki skrif­aðar á skinn. Þið getið líka útskýrt fyrir þeim að til þess að skrifa niður íslenska sögu þarf skinn til að skrifa á, og til að fá skinn þarf að slátra kú. Þannig að endi­lega talið fyrir þeim að slátra kúm. Þetta gætu orðið góðar sam­ræður og gefið þessu mjög dýra partýi ein­hverja þýð­ingu fyrir okkur."

Móðgaði menntamálaráðherra sem sat í salnum


Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, var við­staddur verð­launa­af­hend­ing­una í gær­kvöldi, og telja má nokkuð víst að Benedikt hafi verið að beina gagn­rýni sinni meðal ann­ars að honum. Hrannar B. Arn­ars­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, birti þakk­ar­ræðu Bene­dikts á Facebook síð­unni sinni.



Svo virð­ist sem að Illugi hafi móðg­ast við ræðu Bene­dikts, en til orða­skipta kom á milli þeirra eftir verð­launa­af­hend­ing­una. "Ég hitti Illuga og við áttum ákveðnar við­ræður upp á vest­firsku. Hann gerði athuga­semdir við ræð­una mína, hann hefur jú mál­frelsi eins og ég hef mál­frelsi. Eru stjórn­mála­menn ekki ann­ars með harðan skráp?"

Ráðherrar sem hafa skotið sig í fótinn en haltra áfram


Í sam­tali við Kjarnann sagði Benedikt enn­fremur: "Ráð­herr­unum finnst sjálf­sagt að þeir séu að standa sig vel innan þeirra for­senda sem þeir hafa gefið sér, en mér finnst eins og þeir séu menn sem hafi skotið sig í fót­inn og finn­ist þeir svo standa sig vel á meðan þeir haltra áfram. Auðvitað sárnar mönnum þegar ein­hver æpir á halt­ann mann að hann megi fara hraðar, því honum finnst hann auð­vitað vera að standa sig vel."

Benedikt segir nið­ur­skurð á fjár­fram­lögum til kvik­mynda­gerðar hafa gríð­ar­lega alvar­legar afleið­ingar fyrir geir­ann. "Ég er ekk­ert að fara að gera mynd á næsta ári þrátt fyrir alla þessa vel­gengni, af því að sjóð­ur­inn er tómur. Það eru fullt af frá­bærum kvik­mynda­gerð­ar­mönnum með frá­bær verk­efni í píp­unum en það er bara allt kafnað. Áhrifin af nið­ur­skurð­inum munu skila sér af fullum þunga á næstu tveimur til þremur árum. Þetta er mjög sorg­legt því það er mikið blóma­skeið í gangi og erlendis er talað um ákveðna íslenska bylgju í ljósi vel­gengni íslenskra kvik­mynda und­an­farið. Nú kemur bara vetur."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár