Átta af tíu hafa farið til útlanda 2014, helmingur elskar Icelandair

Helm­ingur Íslend­inga nefnir Icelandair sem upp­á­halds­flug­fé­lagið sitt. Flug­fé­lagið er lang­vin­sælasta flug­fé­lag á Íslandi. Eldra fólk er hrifn­ari af Icelandair en það yngra, sem lætur sig það minna skipta hvaða flug­fé­lag það notar til að fljúga til ann­arra landa.

Þriðj­ungur þjóð­ar­innar hefur engar sér­stakar taugar til neins flug­fé­lags og finnst ekki skipta máli með hverjum er flogið í frí. Hitt íslenska flug­fé­lagið, WOWair, er í öðru sæti á vin­sæld­ar­lista flug­fé­laga, en fimm pró­sent lands­manna nefnir það. Um tvö pró­sent þykir vænst um Easy Jet. Þetta kemur fram í ferða­könnum sem ferða­vef­ur­inn Dohop, leit­ar­vél fyrir flug, bíla og hótel, fram­kvæmdi nýverið.

Könnunin var fram­kvæmd þannig að spurn­ingar voru sendar út á þá 33 þús­und Íslend­ingar sem fylgja Dohop á Facebook og þeirra sjö þús­und Íslend­inga sem eru á póst­lista Dohop. Alls bár­ust 1.257 svör og svar­hlut­fallið því rúm­lega þrjú pró­sent. Afar lík­legt er að þeir sem skrá sig á póst­lista Dohop eða fylgja fyr­ir­tæk­inu á Facebook séu lík­legri en aðrir til að fara til útlanda. Vert er að hafa það í huga við lestur nið­ur­stöð­unnar.

82 prósent farið til útlanda árið 2014


Í könn­un­inni var líka spurt hversu oft þýðið hefði farið til útlanda það sem af er ári 2014. Alls höfðu 39 pró­sent þeirra sem svör­uðu farið tvisvar til fjórum sinnum og 34 pró­sent einu sinni. Um níu pró­sent höfðu farið fimm sinnum eða oftar en ein­ungis 18 pró­sent svar­enda hafði ekki farið til útlanda á árinu. Það þýðir að rúm­lega átta af hverjum tíu Íslend­ingum hefur farið í utan­lands­ferð á þeim tæpu tíu mán­uðum sem liðnir eru af árinu 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár