Pæling dagsins: LÍÚ heyrir sögunni til

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Á morgun fer fram stofn­fundur Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi á Hilton hótel Nordica. Þessi fundur er upp­hafið að enda­lokum LÍÚ, Lands­sam­bandi íslenskra útgvegs­manna. LÍÚ var orðið að hug­ar­fóstri nei­kvæðni sem "brand" eða vöru­merki. Um leið og LÍÚ ber á góma, þá verður allt brjálað! Ýmist með réttu eða röngu, allt eftir því hvernig á það er lítið. Þessi stofn­fundur ætti að gefa sjáv­ar­út­vegnum tæki­færi á því að bera höf­uðið hátt, og gefa öllum hliðum þess­arar stoða­tvinnu­vegar lands­ins tæki­færi á því að blómstra og hafa áhrif. Útgerð­ar­fyr­ir­tækin eru í raun bara lít­ill hluti af stórri heild sjáv­ar­út­vegs­ins á Íslandi. Kjarninn hefur ítrekað heyrt áhyggju­raddir um eitt atriði sem snýr að íslenskum sjáv­ar­út­vegi; það er mark­aðs­setn­ing á erlendum vett­vangi. Helst þarf að fara út í umfangs­mikla og stóra lang­tíma her­ferð þar sem einka­að­ilar og hið opin­bera sam­eina krafta sína. Stjórn­völd studdu dyggi­lega við bakið á ferða­þjón­ust­unni með 700 millj­óna her­ferð undir merkjum Inspired by Iceland. Það er fullt til­efni til þess að fara út í við­líka her­ferð fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg, og vel mögu­legt að ná enn meiri árangri. Þjóð­ar­búið græðir á því, ef vel er á spöð­unum haldið.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár