Verktökum á Lýsisreit stefnt vegna tjóns af völdum sprenginga

Hús­eig­endur við Granda­veg 38 hafa stefnt verk­taka­fyr­ir­tækj­unum Hagtaki hf. og Þingvangi ehf., ásamt Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands, fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur vegna tjóns sem þeir telja hús­eign sína hafa orðið fyrir vegna sprengi­vinnu við fram­kvæmdir á svoköll­uðum Lýs­is­reit. Hús­eig­end­urnir krefj­ast þess að hér­aðs­dómur við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu hinna stefndu sem og máls­kostnað. Kjarninn hefur stefnu máls­ins undir höndum.

Umrædd sprengi­vinna átti sér stað á tíma­bil­inu 6. jan­úar til 31. mars á þessu ári. Stefn­endur eiga saman fast­eign­ina að Granda­vegi 38, en hún liggur að lóð í eigu Þingvangs að Granda­vegi 42-44, svoköll­uðum Lýs­is­reitur. Þingvangur hyggst reisa 144 íbúðir á reitnum auk bíla­kjall­ara. Í fram­kvæmd­unum fólst meðal ann­ars að sprengja í burtu klöpp á reitnum, en fast­eign stefn­enda er innan við fimm­tíu metra frá spreng­i­svæð­inu. Hagtak hafði umsjón með spreng­ing­unum undir eft­ir­liti Þingvangs.

Öflugar sprengingar í andstöðu við reglugerð


Í stefnu máls­ins segir að spreng­ing­arnar á Lýs­is­reitnum hafi verið mjög öfl­ugar og í and­stöðu við reglu­gerð um sprengi­efni, sam­kvæmt gögnum sem stefn­endur öfl­uðu sér frá Vinnu­eft­ir­lit­inu. Ekki liggja fyrir full­nægj­andi mæl­ingar á spreng­ing­unum sem áttu sér stað, og svo virð­ist sem stefndu hafi látið undir höfuð leggj­ast að mæla áhrif spreng­ing­anna á fast­eign stefn­enda, eins og þeim ber að gera sam­kvæmt áður­nefndri reglu­gerð um sprengi­efni, að því er fram kemur í stefnu máls­ins.

Eftir að spreng­ingar á Lýs­is­reitnum hófust bár­ust verk­tök­unum fjöl­margar kvart­anir frá fast­eigna­eig­endum í námunda við spreng­i­svæðið. Þeir voru ugg­andi yfir stærð spreng­ing­anna og töldu sig verða fyrir tjóni á fast­eignum og lausafé vegna þeirra. Í kjöl­far kvart­an­anna héldu verk­taka­fyr­ir­tækin fund með íbúum og eig­enda fast­eigna nærri spreng­i­svæð­inu þann 11. febr­úar síð­ast­lið­inn. Eftir fund­inn sögð­ust verk­tak­arnir ætla að draga úr spreng­ing­unum, en sam­kvæmt stefn­unni liggur ekki fyrir hvort það hafi reynst orða sönnu.

Friðað hús við Grandaveg varð fyrir ætluðu tjóni


Fljót­lega eftir að spreng­ing­arnar hófust urðu hús­eig­endur að Granda­vegi 38 varir við tjón á fast­eign­inni sinni. Umrætt hús er elsta húsið sem stendur á svoköll­uðu Bráð­ræð­is­holti, og er ein­lyft timb­ur­hús með hlöðnum kjall­ara, reist árið 1883. Húsið hefur veru­legt varð­veislu­gildi vegna menn­ing­ar­sögu og mik­il­vægis í götu­mynd. Til dæmis eru allar breyt­ingar á hús­inu háðar lögum um húsa­friðun.

Hús­eig­endur fengu bygg­inga­tækni­fræð­ing til að meta tjónið, en sam­kvæmt úttekt hans varð tjón á stein­hleðslu í kjall­ara húss­ins og burð­ar­súlu á efri hæð. Auk þess telja stefn­endur að frek­ari skemmdir hafi orðið í grunn­hleðslu húss­ins og að burð­ar­bitar þess hafi raskast. Þá hafi fúgur og flísar á bað­her­bergi brotnað.

Stefn­endur sendu verk­taka­fyr­ir­tækj­unum bréf þar sem við­ur­kenn­ingar þeirra á skaða­bóta­skyldu var kraf­ist og að spreng­ing­unum yrði hætt taf­ar­laust. Fyr­ir­tækin svör­uðu ekki bréf­unum og sátta­til­raunir báru ekki árangur.

Tjónið ekki orðið nema vegna sprenginga


Krafa stefn­enda byggir á því að verk­taka­fyr­ir­tækin beri ábyrgð á tjóni þeirra, enda hefði það ekki orðið nema vegna spreng­inga sem verk­tak­arnir beri ábyrgð á. Þá hafi verk­tak­arnir ákveðið að losa mikið magn af klöpp, í þétt­býli, með öfl­ugum spreng­ingum í stað þess að not­ast við vinnu­vélar eða minna magn sprengi­efnis í hvert skipti. Stefndu hafi ákveðið að sprengja í burtu klöpp­ina í stað þess að not­ast við stór­tækar vinnu­vélar, sem hefðu haft í för með sér minni hættu fyrir fast­eignir í nágren­inu. Val þeirra við að nota sprengi­efni hafi verið í hagn­að­ar­skyni þar sem önnur aðferð kynni að vera tíma­frek­ari.

Þá eru verk­tak­arnir sak­aðir um brot á vopna­lögum með því að gera ekki nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir skemmdir vegna spreng­inga.

Málið verður þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár