Straumur eignast tæpan 20 prósent hlut í MP banka

Straumur fjár­fest­inga­banki hefur keypt 9,99% hlut af hol­lenska félag­inu Manastur Holding B.V. og 9,54% hlut af breska félag­inu Linley Limited í MP banka. Eign­ar­hlutur Straums verður því sam­tals 19,53%, sem telst virkur eign­ar­hlutur sam­kvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Við­skipta­blaðið greinir frá þessu á vef sínum og vitnar í útgáfu blaðs­ins á morgun.

Mbl.is greindi ítar­legar frá mál­inu á vef sínum í dag, en eig­endur fyrr­nefndra félaga, sem eru að selja hluti sína, eru Bretinn Joseph Lewis og síðan Rowland fjöl­skyldan, sem á meðal ann­ars Banque Havil­l­and í Lúx­em­borg, sem varð til á grunni Kaup­þings í Lúx­em­borg.

Kaupverð hlut­anna er í frétt­unum er sagt vera trún­að­ar­mál og fæst ekki upp­gefið.

Kaupin bíða nú sam­þykkis hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, sam­kvæmt frétt­inni á vb.is. Gangi þau eftir mun Straumur vera stærsti eig­andi í MP banka. næst­stærsti eig­andi verður að öllu óbreyttu félagið Títan B ehf. í eigu Skúla Mogensen með 9,91% eign­ar­hlut, að því er fram kemur á vb.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár