Þekkt á Íslandi að Ólafi M. Magnússyni sé ekki vel við Framsóknarmenn

Þor­steinn Guðnason aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður DV kveðst ekki hafa talað við full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvorki Hrólf Ölvisson fram­kvæmda­stjóra flokks­ins, né annan um við­skipti með hluta­bréf í DV eða önnur. Þá full­yrðir hann að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi ekki sýnt neinn áhuga á við­skiptum með hluta­bréf í Útgáfu­fé­lagi DV.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Þor­steinn sendi Kjarn­anum nú rétt í þessu, í til­efni af ummælum Ólafs M. Magn­ús­sonar í Kjarn­anum í dag um að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum hafi viljað eign­ast DV.

Yfirlýsing Þorsteins í heild sinni


Í frétta­til­kynn­ingu frá 8. októ­ber, sem var inn­gangur að ráðn­ingu nýs fram­kvæmda­stjora, og kall­aði á sér­stakan starfs­manna­fund 9. októ­ber til útskýr­ingar, sagði meðal ann­ars:

"Einkenni íslensks fjöl­miðla­mark­aðar eru þrír stórir aðilar og fjöldi minni rekstr­ar­að­ila. Margir hinna minni hafa um langt skeið átt við erf­ið­leika og óhag­kvæmni að etja sökum smæðar og þurfa meiri umsvif til að ná trygg­ari afkomu. DV ehf. fellur undir hóp minni aðil­anna.

DV ehf. getur stækkað innan frá og/eða með yfir­töku eða sam­ein­ingu við önnur félög á fjöl­miðla­mark­aðnum. Senni­lega mun hvoru tveggja ger­ast. Til að renna enn styrk­ari stoðum undir félagið hafa for­svars­menn þess átt í við­ræðum við aðra fjöl­miðla um sam­starf eða við­skipti. Vinna við stefnu­mótun mun m.a. leiða í ljós með hvaða hætti slíkt sam­starf eða við­skipti bera að. Mun frekar verða greint frá þessu á næstu dögum, auk þess sem frek­ari skipu­lags­breyt­ingar eru fyr­ir­hug­aðar í ljósi manna­breyt­inga sem urðu nýverið innan fyr­ir­tæk­is­ins."

Svo mörg voru þau orð. Eftir þessu hefur verið unnið síð­ustu daga og vikur. Nýr fram­kvæmda­stjóri hefur verið ráð­inn, aug­lýs­inga­sala hefur tekið kipp og áskrif­endum er tekið að fjölga.

Það er þekkt á Íslandi að Ólafi M Magn­ús­syni er ekki vel við fram­sókn­ar­menn, og sér­stak­lega ekki kaup­fé­lags­stjór­ann á Sauð­ár­króki. Ég frá­bið mér að DV sé ein­hver leiksoppur í því mjólk­ur­stríði, sem kemur blað­inu ekk­ert við.

Ég hef ekki talað við full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvorki þann sem Ólafur M. bendir á, né nokkurn annan um við­skipti með hluta­bréf í DV eða önnur. Sá flokkur hefur ekki sýnt neinn áhuga á við­skiptum með hluta­bréf i Útgáfu­fé­lagi DV.

Ég hef hins vegar átt form­leg og óform­leg sam­töl við full­trúa nokk­urra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja á Íslandi um sam­starf, sölu eða kaup í huga. Ég vona að þau mál skýrist á allra næstu dögum. Jafn­framt verður upp­lýs­ingum um þau mál komið til réttra aðila, Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Fjöl­miðla­nefndar.

Ég hef reynt að upp­lýsa starfs­menn um það sem eig­endur eru að gera hverju sinni án mála­leng­inga, og mun halda því áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár