Ísland hluti af samkomulagi um gagnsæi í skattamálum

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­rit­aði í dag fyrir Íslands hönd yfir­lýs­ingu vegna upp­töku nýs alþjóð­legs stað­als um sjálf­krafa upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum. Alls und­ir­rit­uðu full­trúar 51 ríkis yfir­lýs­ing­una, en und­ir­rit­unin fór fram í Berlín á Global Forum, fundi Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) um gagn­sæi og upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

For­göngu­ríkin 51, sem í dag und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una, hafa skuld­bundið sig til að inn­leiða hinn nýja alþjóð­lega staðal um sjálf­krafa upp­lýs­inga­skipti í málum sem tengj­ast skatta­upp­lýs­ingum skatt­greið­enda, að því er segir í til­kynn­ing­unni, og „við­ur­kenna að árang­urs­rík bar­átta gegn skattaund­anskotum verður ein­ungis háð á alþjóða­vett­vangi.“ Sjálf­krafa upp­lýs­inga­skipti hefj­ast á árinu 2017 vegna fjár­magnstekna sem aflað er á árinu 2016.

„Nýi stað­all­inn felur í sér víð­tæk skipti á upp­lýs­ingum vegna reikn­inga í aflands­ríkjum, m.a. um stöðu reikn­inga og raun­veru­lega eig­endur þeirra. Mark­miðið er að stöðva glæp­a­starf­semi sem teng­ist skattaund­anskotum og takast á við skatt­svik. Slík glæp­a­starf­semi fárra óheið­ar­legra aðila minnkar tekjur hins opin­bera, grefur undan trú­verð­ug­leika skatt­kerfa og eykur skatt­byrði skatt­greið­enda,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Mmið­stöðvar fjár­mála­við­skipta hafa nú skuld­bundið sig til þess að hlíta til­tek­inni tíma­á­ætlun. Munu ríkin skipt­ast á upp­lýs­ingum frá árinu 2017 eða 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár