Pæling dagsins: Óútreiknanlegur lífsins gangur

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Ingj­aldur Hanni­bals­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, er lát­inn, 62 ára að aldri. Blaða­maður Kjarnans, sem þetta skrifar, átti nokkuð oft í sam­skiptum við Ingjald vegna ýmissa mála í fjöl­miðla­starf­inu. Oftast var haft sam­band við hann til að leita upp­lýs­inga og útskýr­inga. Ingj­aldur hafði þann mikla kost að taka því vel þegar til hans var leitað af fjöl­miðlum, og var hjálp­samur. Ein ástæða var sú að hann hafði yfir­leitt brenn­andi áhuga á því sem var til umræðu og yfir­burða­þekk­ingu sömu­leiðis. Ingj­aldur var líka hjálp­samur nem­endum sínum, og skipu­lagði fyrir þá ófáar heim­sóknir í erlenda háskóla. Alþjóð­leg tengsl hans voru vel þekkt, eins og skemmti­legt nýlegt við­tal við mbl.is er til vitnis um. Skyndi­legt frá­fall hans, á besta aldri, er sorg­legt og missir þeirra sem standa honum næst mik­ill, líkt og hins akademíska sam­fé­lags. Atburðir sem þessir eru til áminn­ingar um að lífs­ins gangur er óút­reikn­an­legur, en jafn­framt að hann haldi áfram þrátt fyrir allt. Sam­úð­ar­kveðjur eru sendar til fjöl­skyldu Ingjalds og vina.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár