Fyrstu 50 störfin við hátæknisetur í Vatnsmýri auglýst

Alvotech, syst­ur­fyr­ir­tæki Alvogen, mun ráða í fimm­tíu fyrstu störfin við nýtt hátækni­setur í Vatns­mýr­inni á næstu mán­uðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Alvogen. „Nú er aug­lýst eftir 35 háskóla­mennt­uðum Íslend­ingum með raun­vís­inda­bak­grunn og fyrri hluta næsta árs verður ráðn­ingum haldið áfram. Búast má við því að um 200 ný störf verði til í tengslum við starf­sem­ina á næstu árum,“ segir í til­kynn­ing­unni, en störfin eru aug­lýst á vef Alvogen.

Í nóv­em­ber í fyrra hófust fram­kvæmdir við nýtt hátækni­setur sem verður um þrettán þús­und fer­metrar að stærð, full­búið. Innan set­urs­ins, sem ákveðið var að ráð­ast í á grund­velli sam­komu­lags milli Háskóla Íslands og Reykja­vík­ur­borgar, verður unnið að þróun og fram­leiðslu líf­tækni­lyfja og áætlað er að húsið verði tekið í notkun í árs­byrjun 2016, að því er segir í til­kynn­ingu.

„Sex líf­tækni­lyf eru nú í þróun hjá Alvotech í sam­vinnu við erlenda sam­starfs­að­ila og fyrstu lyf fyr­ir­tæk­is­ins fara á markað árið 2018 þegar einka­leyfi þeirra renna út. Lyfin eru háþróuð stungu­lyf og m.a. notuð við krabba­meini og gigt­ar­sjúk­dómum. Sala frum­lyfj­anna á árinu 2013 á heims­vísu var um 15 millj­arðar evra. Alvotech mun sjá um þróun og fram­leiðslu lyfj­anna en Alvogen og önnur lyfja­fyr­ir­tæki munu sjá um mark­aðs­setn­ingu þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Róbert Wessman, stjórn­ar­for­maður og stofn­andi Alvotech, segir það fagn­að­ar­efni að auk­inn kraftur hafi verið settur í hátækni­setrið. „Það er ánægju­legt að geta byggt upp starf­semi Alvotech hér á landi og að Íslend­ingar hafi tæki­færi til þess að gegna lyk­il­hlut­verki í að móta nýtt lyfja­fyr­ir­tæki,“ segir Róbert.

Heild­ar­fjár­fest­ing Alvotech á sviði líf­tækni­lyfja er um 500 millj­ónir evra, um 75 millj­arðar króna, á næstu árum, þar með talin fjár­fest­ing á full­búnu hátækni­setri. Það er um átta millj­arða fram­kvæmda. Stærsti hluti fjár­fest­ingar er vegna þró­unar- og rann­sókn­ar­kostn­aðar og klínískra rann­sókna. ÞG verk­takar byggja húsið í sam­vinnu við PK arki­tekta, Eflu verk­fræði­stofu og Lagna­tækni. Alls munu skap­ast um 400 árs­verk á fram­kvæmda­tím­anum, að því er segir í til­kynn­ingu.

[caption id="attachment_10789" align="alignleft" width="300"] Andreas Herrman, for­stjóri Alvotech.[/caption]

Andreas Herrman, for­stjóri Alvotech, segir mikil tæki­færi vera að skap­ast í líf­tækni­iðn­aði meðal ann­ars vegna þess að einka­leyfi margra líf­tækni­lyfja muni renna út á næstu árum. „Við sjáum mikil tæki­færi í upp­bygg­ingu líf­tækni­fyr­ir­tækja á næstu árum. Sala líf­tækni­lyfja er í miklum vexti og árlegt sölu­verð­mæti líf­tækni­lyfja sem renna af einka­leyfi til árs­ins 2020 er um 100 millj­arðar banda­ríkja­dala. Það er því eftir miklu að slægj­ast. Við stefnum að því að vera í hópi fyrstu fyr­ir­tækja á markað með okkar lyf þegar einka­leyfi renna út árið 2018 og síðar. Íslend­ingar verða í lyk­il­hlut­verkum í upp­bygg­ingu Alvotech og eru góð blanda við öfl­uga erlenda stjórn­endur sem nú þegar hafa verið ráðnir,“ sagði Herrman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár