Skýrsla lögreglunnar um mótmælin birt í heild sinni

Skýrsla sem Geir Jón Þórisson, fyrrum yfir­lög­reglu­þjónn, skrif­aði um skipu­lag lög­reglu við þau mót­mæli sem fram fóru hér­lendis á árunum 2008 til 2011 hefur verið mikið til umfjöll­unar und­an­farna daga eftir að í ljós kom að hægt var að sjá afmáðan texta undir sterku ljósi eða með því að afrita hann í raf­rænni útgáfu skýrsl­unnar.

Lög­regl­unni var gert að afhenda ein­tök af skýrsl­unni í kjöl­far nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál um að Eva Hauks­dóttir, sem er einn nafn­greindra mót­mæl­enda í skýrsl­unni, ætti rétt á að sjá hana. Í kjöl­farið voru ein­tök send á suma fjöl­miðla. Þau ein­tök voru skömmu síðar inn­kölluð eftir að í ljós kom að hægt var að sjá afmáða text­ann.

Per­sónu­vernd hefur form­lega óskað eftir skýr­ingum frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna upp­lýs­inga­söfn­unar hennar um ein­stak­linga sem tóku þátt í mót­mælum í byrjun árs 2009. Alma Tryggva­dóttir lög­fræð­ingur hjá Per­sónu­vernd stað­festi þetta við Kjarnann í dag.

Erindi með ýmsum spurn­ingum vegna upp­lýs­inga­söfn­un­ar­innar í mót­mæl­unum var sent til lög­regl­unnar í dag með boðsend­ingu.

Kjarninn hefur skýrslu Geir Jóns undir höndum. Hana má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár