Fyrirtaka í SPRON máli í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun

Á morgun verður fyr­ir­taka í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í máli Sérstaks sak­sókn­ara á hendur fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóra SPRON og fjórum fyrr­ver­andi stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins. Í ákæru máls­ins er fimm­menn­ing­unum gefið að sök umboðs­svik með tveggja millj­arða króna lán­veit­ingu til eign­ar­halds­fé­lags­ins Exista, nokkrum dögum fyrir hrun.

Þeir sem eru ákærðir í mál­inu eru Guð­mundur Örn Hauksson, fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri og síðar for­stjóri SPRON, stjórn­ar­menn­irnir Ari Bergmann Ein­ars­son, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­for­maður N1, og Rannveig Rist, for­stjóri Alcan á Íslandi.

Málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Guð­mundur Örn, Margrét og Ari Bergmann mættu við þing­fest­ing­una og neit­uðu öll sök í mál­inu. Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir munu þar af leið­andi lýsa afstöðu sinni til saka­gifta við fyr­ir­töku máls­ins á morgun.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um ákæru Sérstaks sak­sókn­ara á hendur fimm­menn­ing­unum þann 9. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár