Persónuvernd óskar eftir skýringum frá lögreglu

Per­sónu­vernd hefur form­lega óskað eftir skýr­ingum frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna upp­lýs­inga­söfn­unar hennar um ein­stak­linga sem tóku þátt í mót­mælum í byrjun árs 2009. Alma Tryggva­dóttir lög­fræð­ingur hjá Per­sónu­vernd stað­festi þetta við Kjarnann í dag.

Erindi með ýmsum spurn­ingum vegna upp­lýs­inga­söfn­un­ar­innar í mót­mæl­unum var sent til lög­regl­unnar í dag með boðsend­ingu. Alma sagð­ist ekki geta afhent bréfið, en það verði birt um leið og mót­taka hefur verið stað­fest hjá lög­reglu.

Spurn­ingar Per­sónu­verndar snúa meðal ann­ars að því hvernig farið var með upp­lýs­ingar sem lög­reglan safn­aði um ein­stak­linga, hvers vegna upp­lýs­ing­unum var safnað saman og á hvaða laga­grunni það var gert.

Lög­reglan hefur farið fram á að fjöl­miðlar skili aftur skýrslu um við­búnað vegna mót­mæla sem afhent fyrir helgi, að því er fram kom í fréttum RÚV. Vegna mis­taka eru í skýrsl­unni fjöl­mörg nöfn og aðrar upp­lýs­ingar vel grein­an­legar, þótt búið sé að sverta text­ann með yfir­strik­un­arpenna. Jón H. Snorra­son yfir­lög­reglu­þjónn hefur form­lega beðist afsök­unar á þessum mis­tökum.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að lög­reglu hafi borið að afhenda skýrsl­una með þeim fyr­ir­vara að afmá skuli til­teknar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að þau afrit skýrsl­unnar sem ekki upp­fylli þau skil­yrði að text­inn sé afmáður með tryggum hætti, verði inn­kölluð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár