Erlendir ferðamenn eyddu 2 milljörðum meira í september

Erlend greiðslu­korta­velta hér á landi var 9,4 millj­arðar króna í sept­em­ber sem er 1,9 millj­arði króna meira en í sama mán­uði í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar tók saman.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur erlend greiðslu­korta­velta auk­ist um 26 pró­sent sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Rann­sókn­ar­setr­inu. Hæstu upp­hæðum í sept­em­ber vörðu erlendir ferða­menn til hótel- og gisti­húsa, eða um tveimur millj­örðum króna, sem er 25,4% hærri upp­hæð en í sama mán­uði í fyrra. Sá útgjalda­liður sem mest aukn­ing varð í frá sept­em­ber í fyrra var í lið sem nefn­ist ýmis ferða­þjón­usta, en þar undir eru skoð­un­ar­ferðir, hvala­skoðun og aðrar skipu­lagðar ferðir. Aukn­ingin á útgjöldum ferða­manna í þessa þjón­ustu nam tæp­lega 60 pró­sentum.

Meðalvelta á ferðamann eftir þjóðerni.


Sept­em­ber, 2014 Með­al­velta á ferða­mann
( þús. kr. )
Sviss 174
Noregur 141
Önnur lönd 135
Rússland 131
Banda­ríkin 117
Danmörk 113
Alls 106
Bretland 101
Kanada 100
Spánn 97
Holland 97
Frakk­land 96
Svíþjóð 90
Ítalía 84
Þýska­land 83
Finnland 69
Kína 61
Japan 42
Pólland 32

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár