Barnafátækt á Íslandi jókst um 20 prósent á árunum 2008 til 2012

Barna­fá­tækt á Íslandi jókst um rúm 20 pró­sentu­stig á árunum 2008 til 2012, ef miðað er við lág­tekju­mörk frá árinu 2008. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF sem ber heitið "Kreppu­börnin - áhrif efna­hags­hruns­ins á vel­ferð barna í ríkum löndum," og var kynnt fjöl­miðlum í dag. Í skýrsl­unni eru borin saman gögn frá 41 ríki innan OECD og Evr­ópu­sam­bands­ins og þau skoðuð með til­liti til þess hvort fátækt barna hafi auk­ist eða minnkað frá árinu 2008.

Ísland situr í neðsta sæti af ríkj­unum 41, næst á eftir Grikk­landi, með mesta aukn­ingu barna­fá­tæktar á tíma­bil­inu, en 20 pró­senta aukn­ingin sam­svarar því að sautján þús­und fleiri börn hér á landi hafi fallið undir lág­tekju­mörkun frá árinu 2008. Með því að nota lág­tekju­mörk frá árinu 2008 sem við­mið, leit­ast skýrslu­höf­undar við að varpa ljósi á áhrif efna­hags­þreng­ing­anna árið 2008 sér­stak­lega og þá skertu lífs­af­komu sem sam­fé­lögin í heild sinni hafa mörg hver þurft að þola af þeirra völdum.

Aukin barna­fá­tækt dreif­ist ekki jafnt í íslensku sam­fé­lagi, en mun lík­legra er að börn ein­stæðra for­eldra, börn fjöl­skyldna þar sem atvinnu­þátt­taka er lítil, og börn inn­flytj­enda, búi á heim­ilum undir lág­tekju­mörgum. Barna­fá­tækt á Íslandi eykst mest hjá börnum inn­flytj­enda á tíma­bil­inu eða um 38 pró­sent.

Samkvæmt skýrslu UNICEF hefur efn­is­legur skortur á meðal barna á Íslandi þre­fald­ast á tíma­bil­inu, farið úr 0,9 pró­sentu­stigum upp í 3,1 pró­sentu­stig. Ef skoð­aðir eru þeir sem bæði eru undir lág­tekju­mörkum og líða skort er um fjór­földun að ræða, 0,6 pró­sent barna til­heyrðu þessum hópi árið 2008, en árið 2012 hafði það hlut­fall auk­ist upp í 2,6 pró­sent íslenskra barna.

Af lönd­unum 41 sem eru borin saman í skýrsl­unni jókst fátækt barna frá árinu 2008 í 23 ríkjum. Í hinum átján ríkj­unum tókst að stemma stigu við aukn­ingu barna­fá­tæktar og í Ástralíu, Chile, Finn­landi, Noregi og Slóvakíu minnkað hlut­fall barna­fá­tæktar um nærri 30 pró­sentu­stig. Samkvæmt skýrsl­unni er styrkur vel­ferð­ar­kerfis ríkj­anna lyk­il­þáttur í að sporna gegn auk­inni fátækt barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár