Pæling dagsins: Virkar ekki á stjórnmálamenn að vera málefnalegur

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Kjarninn fjall­aði á dög­unum um mál­efni fanga og stöðu fang­els­is­mála. Í stuttu máli, er hún ekki góð vegna þess að mála­flokk­ur­inn er aðþrengdur fjár­hags­lega og fang­elsis­plássin eru of fá. Faglegt starf situr á hak­anum fyrir vikið, svo sem sál­fræði­þjón­usta og með­ferð­ar­úr­ræði (það eru jú upp til hópa veikir fíklar í fang­elsum, en látum það vera að sinni). Yfirfull fang­elsi geta breyst í glæpa­manna­geymslur frekar en betr­un­ar­stofn­anir við þessar aðstæður. Það er hreint út sagt hræði­leg til­hugsun ef þessi staða fær að ganga mikið lengur. Hinn sið­ferði­legi grund­völlur rétt­ar­rík­is­ins er skammt undan og verður holur að innan ef fang­elsi verða alltaf afgangs­stærð. Ef fólk þarf að bíða í mörg ár eftir því að geta afplánað, og það í illa útbúnum fang­elsum sem sam­ræm­ast ekki nútíma­þekk­ingu, þá er voð­inn vís. Það merki­lega við stöð­una sem snýr að stjórn­völdum er sú, að yfir­menn fang­els­is­mála­flokks­ins hafa árum saman bent á þessa alvar­legu stöðu með tölu­legum stað­reyndum og úttektum sér­fræð­inga á næstum öllum sviðum fang­els­is­mála­flokks­ins. Páll Winkel, fang­els­is­mála­stjóri, á hrós skilið fyrir mál­efna­lega bar­áttu. En hugs­an­lega þarf að beita ein­hverjum öðrum aðferðum en að leggja spilin á borðin. Því miður er það ekki að virka nægi­lega vel, miðað við við­brögð stjórn­mála­mann­anna. Vonandi verður stefnu­breyt­ing í þessum málum. Það er orðið aðkallandi.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár