Málflutningur í meiðyrðamáli Gillz í Hæstarétti

Í dag fer fram aðal­með­ferð fyrir Hæsta­rétti í meið­yrða­máli Egils Ein­ars­sonar á hendur Inga Krist­jáni Sig­ur­mars­syni og Sunnu Ben Guð­rún­ar­dóttur. Egill, betur þekktur sem Gillz, stefndi þeim vegna ummæla á Facebook, sem hann taldi vera æru­meið­andi, og sam­settrar ljós­myndar sem birt var á Instagram. Þess má geta að Ingi Kristján er sonur Álf­heiðar Inga­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­manns Vinstri grænna, og Sig­ur­mars K. Alberts­sonar lög­manns

Ingi Kristján birti breytta mynd af Agli á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram og skrif­aði við mynd­ina: "Fuck you rap­ist bast­ard." Sunna Ben skrif­aði ummæli inn á Facebook þar sem hún fór hörðum orðum um Egil og kall­aði hann meðal ann­ars nauð­gara.

Ingi Kristján og Sunna Ben voru sýknuð í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í nóv­em­ber á síð­asta ári, og Egill dæmdur til að greiða máls­kostnað, sam­tals 400 þús­und krónur. Engu að síður voru ummæli Sunnu dæmd dauð og ómerkt. Egill áfrýj­aði dóm­nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar, en lög­maður hans er Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Eins og áður segir fer fram mál­flutn­ingur í mál­inu fyrir Hæsta­rétti í dag, en óvíst er hversu langan tíma rétt­ur­inn tekur sér til að kveða upp dóm sinn í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár