Stjórnarformaður FME sagður hafa hagnast um tæpan milljarð

Halla Sigrún Hjart­ar­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Í blað­inu kemur enn fremur fram að Halla Sigrún hafi neitað því að hafa átt í félag­inu til þessa, en hún var skipuð for­maður stjórnar FME í des­em­ber í fyrra.

Í blað­inu segir að fé­lag í henn­ar eigu hafi farið með 22% eign­ar­hlut í Heddu eign­ar­halds­fé­lagi. Það fé­lag átti 66% hlut í P/​F Magn og 25% hlut í Skelj­ungi. Sam­tals nam hagn­aður Heddu af sölu á hlut­un­um 3,8 millj­örðum árið 2013, sam­kvæmt frá­sögn blaðs­ins.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðs­ins, sem vitnað er til í grein­inni, eign­að­ist Halla hlut í Heddu þegar hjón­in Svan­hild­ur Nanna Vig­fús­dótt­ir og Guðmund­ur Örn Þórðar­son, sem áttu þá P/​F Magn og Skelj­ung á Íslandi, seldu 66% hlut í fé­lag­inu.

[caption id="" align="alignleft" width="213"] Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir stjórn­ar­for­maður FME.[/caption]

Í Morg­un­blað­inu segir að, ásamt Höllu hafi Ein­ar Örn Ólafs­son, þáver­andi for­stjóri Skelj­ungs, og Kári Þór Guðjóns­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi sam­starfs­fé­lagi Höllu og Ein­ars í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka, keypt 22% hlut hvor um sig í fé­lag­inu. Við kaup­in eign­uð­ust þau meiri­hluta í P/​F Magn.

Svan­hild­ur og Guðmund­ur keyptu P/​F Magn af þrota­búi Fons vorið 2009 og nam kaup­verðið aðeins á þriðja hund­rað millj­ón­um, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Morg­un­blaðs­ins. Var fé­lagið selt, ásamt Skelj­ungi, fyr­ir átta millj­arða í árs­lok 2013.

Halla Sigrún var skipuð stjórn­ar­for­maður FME í des­em­ber í fyrra af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra. Hún hafði áður starfað hjá Straumi í tvö ár en starfs­lok hennar þar bar skyndi­lega að. Fullyrt var í fjöl­miðlum að starfs­lokin hefðu verið til­komin vegna þess að upp komst um fjár­fest­ingar hennar í Skelj­ungi og P/F Magn. Halla neit­aði því í sam­tali við DV og sagð­ist aðspurð að hún ætti ekk­ert í Skelj­ungi eða félögum sem tengj­ast olíu­fé­lag­inu. „Ég vil ekki tjá mig um fjár­fest­ingar mínar í fjöl­miðlum […] Ég hef ekki átt nein við­skipti við Skeljung umfram það að kaupa bensín.“ Hún neitar því að komið hafi upp trún­að­ar­brestur á milli hennar og Straums áður en hún lét af störfum hjá bank­anum. „Nei, alls ekki.“ Halla Sigrún seg­ist kann­ast við þessa „leið­in­legu kjafta­sögu“ en segir að hún vilji ekki ræða málið í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár