"Ég held að þjóðin skilji að við þurfum að fá kjarabætur"

Þorbjörn Jónsson, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, var gestur Sigmars Guð­munds­sonar í Kast­ljós­inu á RÚV í kvöld. Eins og kunn­ugt er hófust verk­falls­að­gerðir lækna á mið­nætti, en þetta er í fyrsta skipti sem læknar fara í verk­fall hér á landi.

Læknar hafa ekki viljað kynna launa­kröfur sínar opin­ber­lega, en talið er að þær hljóði upp á ríf­lega 30 pró­senta launa­hækkun að lág­marki. "Við erum að tala um veru­legar kjara­bætur, ég get stað­fest það, en við höfum ekki talið skyn­sam­legt að fara út í karp um pró­sentur og ein­staka tölur í fjöl­miðlum," sagði Þorbjörn aðspurður í Kast­ljósi um launa­kröfur lækna.

Þorbjörn segir lækna finna fyrir stuðn­ingi og með­byr frá almenn­ingi. "Ég held að þjóðin skilji það að læknar þurfa að fá kjara­bót." Hann segir veru­legar kjara­bætur verða að koma til til að sporna við atgervis­flótta lækna. "Þetta snýst um fram­tíð lækn­is­þjón­ustu á Íslandi. Okkur finnst krafa okkar sann­gjörn til að fyr­ir­byggja upp­lausn í heil­brigð­is­kerf­inu, ef fólk kemur ekki aftur heim til að vinna."

Launa­kröfur lækna eru ekki síst til að trekkja frekar unga lækna aftur heim til Íslands eftir lækna­nám erlendis. "Við verðum að fá nýja þekk­ingu til lands­ins. Við höfum þegar glatað einni kyn­slóð, þeir sem eru búnir að vera úti lengur en í tíu ár eru mjög lík­legir til að koma ekki aftur heim."

Aðspurður um við­brögð lækna ef verk­fall þeirra verður stöðvað með laga­setn­ingu, svar­aði Þorbjörn: "Ég held að það væri óheilla­skref að fara þá leið, læknar yrðu mjög óhressir með það."

Yfir­stand­andi verk­fall nær til heil­brigð­is­stofn­ana á lands­byggð­inni auk heilsu­gæslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hluta Land­spít­ala. Á mið­viku­dag hefst svo annað tveggja daga verk­fall og fleiri eru boðuð. Hátt í átta hund­ruð læknar munu taka þátt í verk­falls­að­gerð­unum.

Kjara­við­ræður lækna við ríkið eru í hnút, en næsti fundur í kjara­deil­unni hefur verið boð­aður hjá Rík­is­sátta­semj­ara á mið­viku­dag­inn. Lækna­fé­lag­inu hafa borist stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar í dag frá Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, Félagi líf­einda­fræð­inga, frá Ljós­mæðra­fé­lagi Íslands og frá Sál­fræð­inga­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár