LHG hefur þrívegis fengið gefins hríðskotabyssur frá norska hernum

Land­helg­is­gæslan sendi fjöl­miðlum síð­degis sam­komu­lög og farm­bréf vegna hríð­skota­byssa sem gæslan hefur fengið að gjöf frá norska hernum á und­an­förnum árum. Land­helg­is­gæslan hefur þrí­vegis á síð­ustu miss­erum fengið 310 hríð­skota­byssur og annan búnað gef­ins frá Noregi, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni frá gæsl­unni. Fyrsta gjöfin átti sér stað árið 2011, og tvær árið 2013.

Tilkynning frá Landhelgisgæslunni


Í ljósi umræðu sem skap­ast hefur um hríð­skota­byssur frá Norð­mönnum til Íslend­inga hefur Land­helg­is­gæslan ákveðið ein­hliða, að birta sam­komu­lög og farm­bréf sem gerð hafa verið um umræddar gjafir. Þar má sjá magn, verð­mat gjaf­anna og almenna skil­mála.

Um er að ræða þrjár gjafir. Sú fyrsta var á árinu 2011 en þá stóð Land­helg­is­gæslan frammi fyrir því að þurfa með stuttum fyr­ir­vara að senda tvö varð­skip á vara­sama staði í Mið­jarð­ar­haf­inu og var í því skyni leitað til Norð­manna um lán á hent­ugum varn­ar­vopnum. Þannig stóð á að norski flug­her­inn var á leið til Íslands vegna verk­efna. Herinn leysti málið fyrir Land­helg­is­gæsl­una á tveimur sól­ar­hringum og sendi 50 MP5 hríð­skota­byssur sem þeir höfðu aflagt. Vopnin eru geymd í vopna­geymslu Land­helg­is­gæsl­unnar á Örygg­is­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Verðmat þess­arar gjafar var 2.500 NOK per stykki sem er aðeins 1/8 af verði þess­ara vopna frá fram­leið­anda í Þýska­landi. Engar greiðslur hafa farið fram og eng­inn reikn­ingur verið sendur.

Önnur gjöfin var innt af hendi í júní 2013 þegar yfir­maður norska her­afl­ans var staddur á Íslandi vegna funda með full­trúum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Færði norski her­inn þá Land­helg­is­gæsl­unni alls 50 hjálma, 50 vesti og 10 hríð­skota­byssur af gerð­inni MP3. Um þetta var ekki gert sér­stakt sam­komu­lag heldur liggur aðeins fyrir farm­bréf um þann gjörn­ing. Þessar 10 hríð­skota­byssur eru allar í vopna­geymslu Land­helg­is­gæsl­unnar á Örygg­is­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli og hafa ekki enn verið teknar í notkun. Verðmat gjaf­ar­innar var 2 NOK. Engar greiðslur hafa verið inntar af hendi og eng­inn reikn­ingur verið sendur.

Þriðja vopna­gjöfin er frá árinu 2013 og kom til lands­ins með norskri her­flutn­inga­vél í febr­úar 2014. Þar var um að ræða 250 hríð­skota­byssur af gerð­inni MP5 en þar af voru 150 ætl­aðar Rík­is­lög­reglu­stjóra, sam­kvæmt beiðni hans til norskra yfir­valda. Þær hund­rað sem eftir standa eru ætl­aðar til end­ur­nýj­unar og við­halds fyrir Land­helg­is­gæsl­una. Allar þessar byssur eru geymdar í vopna­geymslu Land­helg­is­gæsl­unnar á Örygg­is­svæð­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli og hafa ekki verið form­lega afgreiddar né afhentar. Verðmat þess­arar gjafar var 2.500 NOK per stykki sem er aðeins 1/8 af verði þess­ara vopna frá fram­leið­anda í Þýska­landi. Engar greiðslur hafa farið fram og eng­inn reikn­ingur verið sendur.

Eins og fram hefur komið var Land­helg­is­gæslan milli­liður vegna beiðni Rík­is­lög­reglu­stjóra vegna umræddra vopna en í gegnum árin hefur Land­helg­is­gæslan haft milli­göngu um öflun ýmissa tækja og tækni­bún­aðar frá hern­að­ar­yf­ir­völdum fyrir ýmsar stofn­anir á Íslandi, þar sem hún er tengiliður við hern­að­ar­yf­ir­völd víða um heim. Má þar nefna veð­ur­rat­sjár, aðflugs­búnað og flug­vall­ar­tæki.

Gjafir sem þessar hafa ekki boð­ist Land­helg­is­gæsl­unni nema á nokk­urra ára­tuga fresti og byggj­ast á góðu sam­starfi Land­helg­is­gæsl­unnar við hern­að­ar­yf­ir­völd nágranna­þjóð­anna. Fjár­hags­staða Land­helg­is­gæsl­unnar leyfir ekki end­ur­nýjun bún­aðar sem þessa nema með þeim hætti sem hér er rak­inn. Því þáði Land­helg­is­gæslan þetta boð um aflögð vopn í því skyni að end­ur­nýja varn­ar­vopn og eiga vara­hluti til næstu ára­tuga. Hér er ekki um að ræða öfl­ugri vopn en verið hafa í vopna­safni Land­helg­is­gæsl­unnar fram að þessu. Land­helg­is­gæslan telur þetta eðli­lega fram­kvæmd og nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að við­halda lág­marks­ör­ygg­is­bún­aði og í fullu sam­ræmi við gild­andi lög, reglu­gerðir og verk­lags­reglur sem gilda um vopna­eign og vopna­burð Land­helg­is­gæsl­unnar og felur þar af leið­andi ekki í sér neina stefnu­breyt­ingu í þeim efnum.

Smelltu hér til að skoða skjalið sem Land­helg­is­gæslan sendi fjöl­miðlum nú rétt í þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár