Starfsmenn Hafró gagnrýna harðlega fyrirkomulag haustralls

Starfs­menn Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar harma ákvörðun stofn­un­ar­innar um að bjóða árlegt haustrall út, og að það sé nú fram­kvæmt af leigu­skipum á meðan rann­sókn­ar­skip Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, sem sinnt hafa verk­efn­inu frá árinu 1996, liggi bund­inn við bryggju. Þetta kemur fram í fund­ar­á­lyktun sem starfs­menn­irnir hafa sent fjöl­miðlum.

Vegna bágrar fjár­hags­stöðu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar var haustrall árs­ins boðið út til útgerða fiski­skipa, þar sem í boði var afla­mark og hlutur í afla­verð­mæti sem greiðsla fyrir haustrallið. Starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa áhyggjur af því að með því hafi verið skapað for­dæmi þar sem leigu­skip verði tekin fram yfir rann­sókna­skip Haf­rann­sókn­ar­stofn­unnar, sem séu sér­hönnuð til vís­inda­rann­sókna.

Starfs­menn Hafró benda á að fyr­ir­komu­lagið feli ekki í sér sparnað. Andvirði afla­marks (786 þorskígild­stonn) og afla sem ríkið lætur tveimur útgerðum í té sé um 200 millj­ónir króna á meðan rekstr­ar­kostn­aður vegna úthalds rann­sókn­ar­skipa Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar til verks­ins sé áætl­aður um 25 millj­ónir króna.

Fundur starfs­manna Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, sem hald­inn var 24. októ­ber síð­ast­lið­inn, lýsir yfir sér­stökum áhyggjum af langvar­andi nið­ur­skurði til stofn­un­ar­innar, sem valdi því að hún sé komin í þá stöðu sem raun ber vitni og eigi erfitt með að sinna lög­bundnu hlut­verki sínu.

Árið 1996 hóf Haf­rann­sókn­ar­stofnun stofn­mæl­ingu botn­fiska að hausti, svo kallað haustrall, með það að mark­miði að auka gæði fisk­veiði­ráð­gjafar. Með til­komu rann­sókna­skips­ins Árna Frið­riks­sonar árið 2000 hafa rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­unar, það er Árni Frið­riks­son og Bjarni Sæmunds­son, alfarið séð um fram­kvæmd haustralls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár