Söfnuðu fjórum milljónum króna fyrir útigangsfólk

Sérstök gúr­met-góð­gerð­ar­pítsa úr smiðju Hrefnu Sætran meist­ara­kokks, sem Domino's hóf sölu á í byrjun októ­ber, skil­aði minn­ing­ar­sjóði Lofts Gunn­ars­sonar, sem styrkir úrræði fyrir úti­gangs­fólk rúmum fjórum millj­ónum króna. Sjóð­ur­inn hyggst kaupa nýja skápa, rúm, sæng­ur­föt og ýmis raf­tæki, hús­gögn og hús­muni inn á gisti­skýli og athvörf sín í borg­inni.

Sölu­and­virði allra seldra góð­gerð­ar­pítsanna rann í minn­ing­ar­sjóð­inn en móðir Lofts, Þórunn Brands­dóttir, veitti upp­hæð­inni mót­töku úr hendi Hrefnu og Birgis Arnars Birg­is­sonar, fram­kvæmda­stjóra Domino's á Íslandi, í Gisti­skýl­inu í dag.

Samtals söfn­uð­ust 4.114.137 krónur. Fjár­mun­irnir munu meðal ann­ars nýt­ast við kaup á 21 rúmi og sæng­ur­bún­aði sem mun skipt­ast á þrjá staði, Dag­setrið, úrræði fyrir heim­il­is­lausa á Miklu­braut og smá­hýsin á Granda. Einnig verða keyptir skápar í gisti­skýlið fyrir heim­il­is­lausa karla, en þess má geta að það flytur inn í nýtt hús­næði í dag, mánu­dag.

Enn­fremur mun sjóð­ur­inn kaupa hús­gögn, raf­tæki og aðra muni sem bæta lífs­gæði fólks á stöðum sem þjón­usta úti­gangs­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár