Mesta mengunin í Suðursveit og á Mýrum

Meng­un­ar­mælar sýna að styrkur brenni­steins­dí­oxíðs (SO2) er 1.800 míkrógrömm á rúmmetra á Höfn í Horna­firði og í Skafta­felli. „Búast má við því að svipuð eða hærri gildi séu á svæð­inu þar á milli,“ segir í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum. Meng­un­ina má rekja til eld­goss­ins í Holu­hrauni, eins og kunn­ugt er.

Hæsta gildi SO2 sem mælst hefur síðan í morgun er 2.200 míkrógrömm á rúmmetra í Suð­ur­sveit og á Mýrum, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Fólk með und­ir­liggj­andi önd­un­ar­færa sjúk­dóma er hvatt til þess að hafa sér­stakar gætur á líðan sinni og hafa strax sam­band við lækni ef það finnur fyrir óþæg­indum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stofu Íslands má gera ráð fyrir mik­illi mengun á svæð­inu næsta sól­ar­hring­inn. Hér að neðan eru upp­lýs­ingar sem Almanna­varnir hvöttu til þess að yrðu birtar í fjöl­miðlum.

Frekari ráð­staf­anir:

„Ef mengun er mikil og fólk finnur fyrir óþæg­indum jafn­vel þó það dvelji inn­an­dyra er hægt að grípa til ráð­staf­ana til að draga úr styrk meng­unar inn­an­húss með því að útbúa ein­faldan hreinsi­búað.


  1. Takið 5 gr. af venju­legum mat­ar­sóda og leysið upp í 1 lítra af vatni.

  2. Bleytið ein­hvers­konar klút t.d. viska­stykki, þunnt hand­klæði eða gam­al­dags gas­bl­eyju í þess­ari lausn.

  3. Vindið mesta vatnið úr þannig að ekki leki vatn úr.

  4. Festið þennan raka klút upp á ein­hvers­konar grind, t.d. þurrk­grind fyrir þvott og festið á öllum hliðum t.d með þvottaklemmum.

  5. Stillið grind­inni upp í því her­bergi sem ætl­unin er að hreinsa loftið í.

  6. Til að klút­ur­inn haldi virkni sinni þarf hann að vera rakur og gott er að halda raka­stig­inu við með því að úða á hann vatni t.d. úr blóma­úða­brúsa.

  7. Til að auka virkn­ina er gott að láta borðviftu blása á klút­inn. ATH! viftan er raf­magns­tæki, gætið þess að raki úr klútum eða frá úða­brús­anum kom­ist ekki í vift­una. Viftan þarf að standa í öruggri fjar­lægð frá klútum, ekki nær en um það bil tvo metra. Alls ekki breiða klút­inn yfir sjálfa vift­una.

  8. Ef vifta er ekki til staðar gerir klút­ur­inn samt gagn sér­stak­lega ef honum er komið fyrir nálægt ofnum, en loft­flæði er meira við ofna en aðra staði í íbúð­inni. ATH! Ekki er þörf á að breiða klút­inn yfir ofn­inn, nóg er að hann standi á grind við hlið­ina á ofn­inum. Gætið var­úðar við raf­magns­ofna, aldrei má hindra loft­flæði að þeim eða breiða neitt yfir þá.

  9. Ef langvar­andi mengun er til staðar þarf að skola klút­inn undir renn­andi vatni tvisvar á dag og setja hann aftur í mat­ar­sóda­lausn­ina.


Að auki er gagn­legt að skrúfa frá kaldri sturtu og hafa sturtu­klef­ann og bað­her­berg­is­dyrnar opnar. Þessi aðferð hjálpar til við að hreinsa loftið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár