Fleiri myndbönd til af umhverfisspjöllum vélhjólamanna

Eins og Kjarninn greindi frá á föstu­dag­inn hyggst Umhverf­is­stofnun kæra banda­rískt vél­hjólateymi og þrjá leið­sögu­menn á vegum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Rider til lög­reglu vegna utan­vega­akst­urs og umhverf­is­spjalla á hálendi Íslands í sept­em­ber.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið, sem ætlar að bjóða ferða­mönnum upp á skipu­lagðar mót­or­kross vél­hjóla­ferðir næsta sumar, ann­að­ist skipu­lagn­ingu fimm daga ferðar Banda­ríkja­mann­anna, en um prufu­ferð var að ræða. Myndband af ferð­inni, þar sem menn­irnir sjást stunda umfangs­mik­inn utan­vega­akstur í námunda við Heklu, hefur vakið athygli á net­inu. Að mati Umhverf­is­stofn­unar varðar það sem sést á mynd­band­inu við lög um nátt­úru­vernd, en meint brot mann­anna varða allt að fjög­urra ára fang­elsi.

Vísaði ásökunum um umhverfisspjöll á bug


Eigandi Arctic Rider, Jóhannes Svein­björns­son, vís­aði ásök­unum um umhverf­is­spjöll á bug í sam­tali við Kjarnann á föstu­dag­inn. "Það er mjög sær­andi að heyra við­brögð fólks við þess­ari ferð, því við keyrðum aldrei út fyrir slóða. Við keyrðum á mal­ar­vegum, en það liggja jeppa­vegir út um allt land eins og flestir Íslend­ingar vita. Fólk sem fer aldrei út úr 101 veit þetta ekki, en svo drullar það yfir mann eins og maður sé búinn að eyði­leggja landið," sagði Jóhannes í sam­tali við Kjarnann.

"Við leggjum mikið upp úr því að fara aldrei út fyrir slóða. Það var einu sinni sem einn okkar fór út úr slóða, og þá lét ég hann laga grasið, ég var svo harður á þessu. Ég sagði líka við hóp­inn að ef ein­hver færi út fyrir slóða þá yrði ekki hjólað meira þann dag­inn. Ég er ekk­ert stress­aður yfir þessu, því ég veit að við gerðum ekk­ert rangt."

"So much fun just rippin' around!"


Áður­nefndur Jóhannes hefur und­an­farið verið dug­legur við að birta mynd­bönd af sér og félögum sínum á Youtube að stunda vél­hjóla­akstur í nátt­úru Íslands. Umhverf­is­stofnun hefur borist fjöldi ábend­inga um mynd­böndin, og mun stofn­unin sömu­leiðis vísa þeim til rann­sóknar lög­reglu.

Á einu mynd­band­inu, sem Jóhannes setti inn á Youtube þann 25. maí síð­ast­lið­inn, má sjá hvar hann og fleiri vél­hjóla­menn stunda gengd­ar­lausan utan­vega­akstur, að því er talið er á svæði í námunda við Heklu, þar sem þeir sjást aka yfir mosa og annan við­kæman gróð­ursvörð. Í mynbandinu heyrst þegar sá sem tekur mynd­bandið segir: "So much fun just rippin' around!" Sjón er sögu rík­ari.

Umhverf­is­stofnun lítur athæfi mann­anna mjög alvar­legum augum, og vinnur nú að því að setja saman kæru sem stofn­unin hyggst senda lög­reglu innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár